Innlent

Skriðuhætta fer minnkandi en áfram er óvissustig

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Skriður féllu aðfaranótt 4. október 2021 við bæinn Þóroddsstaði í Útkinn.
Skriður féllu aðfaranótt 4. október 2021 við bæinn Þóroddsstaði í Útkinn. Mynd/Lögreglan á Norðurlandi eystra

Verulega hefur dregið úr skriðuhættu í Kinn í Þingeyjarsveit auk þess sem að ástandið hefur lagast í Útkinn. Rýmingu hefur verið aflétt í Kinn en beðið verður með að aflétta rýmingu í Útkinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum þar sem segir að samkvæmt mati sérfræðinga Veðurstofunnar hafi verulega dregið úr skriðuhættu á syðra svæði rýmingarinnar í Kinn, ástandið þar sé orðið skaplegt.

Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á syðra svæðinu sem nær frá og með Ófeigsstöðum og Rangá í norðri að Hrafnsstöðum í suðri. Vatn í hlíðum hefur minnkað mikið síðan á sunnudag þrátt fyrir rigninguna undanfarið Þá hafa engar skriður fallið á þessu svæði í hrinunni og talið er að skriðuhætta sé orðin lítil.

Hættustig áfram í gildi

Á ytra svæðinu þar sem bæirnir norðan við Ófeigsstaði og Rangá standa í Útkinn hefur ástandið líka lagast. Ekki hefur frést af neinum nýjum skriðuföllum í rúman sólarhring. Lækir eru enn í skriðusárum en þeir hafa minnkað. Skriðuhætta er talin hafa minnkað mikið en þó er ástæða til að fylgjast með stöðunni fram eftir degi áður en rýmingu verður aflétt á nyrðra svæðinu.

Hættustig Almannavarna er áfram í gildi á svæðinu. Óvissustigi á Tröllaskaga er hér með aflétt.

Vegurinn um Kinn hefur verið opnaður fyrir almennri umferð og stefnir vegagerðin að því að ryðja aur af vegi í Útkinn í dag. Síðdegis verður haldinn stöðufundur með Veðurstofu Íslands og kannað hvort öruggt verði að aflétta rýmingu í Útkinn.

Veðurspáin gerir ráð fyrir austanhvassviðri á fimmtudag og þá gæti rignt hressilega, sérstaklega á nyrðra svæðinu. Viðbragðsaðilar munu áfram fylgjast með veðurspánni og taka afstöðu til þess hvaða áhrif hún hefur á skriðuhættu.


Tengdar fréttir

„Þetta eru miklar hamfarir“

Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur birt ratsjármyndir þar sem sjá má samanburð á svæðinu í Kinn og Útkinn fyrir og eftir miklar skriður sem féllu þar um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×