Vilja að ný ríkisstjórn lýsi yfir neyðarástandi í loftslagsmálum Fanndís Birna Logadóttir skrifar 4. október 2021 12:33 Samtökin krefjast þess að loftslagsmál verði í kjarna ríkisstjórnarsamstarfsins. Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar krefjast þess að loftslagsmál verði í kjarna nýs ríkisstjórnarsamstarfs og að þau komi sér strax að verki. Segja þau að síðastliðin fjögur ár hafi loftslagsstefna stjórnvalda verið „ófullnægjandi og einkennst af hálfkáki.“
Í yfirlýsingu samtakanna eru ellefu kröfur lagðar fram. Þess er meðal annars krafist að ný ríkisstjórn muni þegar í stað lýsa yfir neyðarástandi vegna loftslagsbreytinga svo hægt sé að tryggja að allar ákvarðanir miði að því að draga úr losun.„Ekkert bendir til þess að Ísland muni standa við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamningnum,“ segir í yfirlýsingu samtakanna og er þar bent á að miðað við núverandi aðgerðir til að draga úr losun muni ekki duga til í ár eða næstu árin.Að öllu óbreyttu myndi samdráttur í losun fram til ársins 2030 vera 23 prósent í stað 29 prósent, rúm 700 þúsund tonn koltvísýringsígilda í stað tæp 1200 þúsund tonn.Kröfur samtakanna snúa meðal annars að því að uppfæra aðgerðaráætlun í loftslagsmálum, fasa út notkun jarðefnaeldsneytis, banna bruna og flutning svartolíu innan tólf mílna landhelgi Íslands, moka ofan í skurði á öllum jörðum í ríkiseigu og leggja kolefnisgjald á alla losun.Þá eigi að leggja af framleiðslutengda styrki til landbúnaðar og veiti þess í stað styrki til atvinnustarfssemi og búsetu á landsbyggðinni, einkum í þágu bættrar landnotkunar og náttúruverndar. Einnig þurfi að auka verulega rannsóknir, gagnaöflun og aðgengi að upplýsingum um loftslagsmál til að upplýsa ákvarðanatöku og almenning betur um stöðu losunar og aðgerða á Íslandi Kröfur samtakanna í heild sinni má finna hér fyrir neðan. 1. Lýsi þegar í stað yfir neyðarástandi vegna loftslagsbreytinga til að sjá til þess að allar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar miðist við að draga úr losun. 2. Styðji við markmið Parísarsáttmálans um að takmarka hlýnun Jarðar við 1.5°C frá iðnbyltingu á borði en ekki einungis í orði með því að setja sér sjálfstætt markmið um a.m.k. 55% samdrátt fyrir 2030 m.v. 2005 í stað markmiðs sem er á bilinu 29–55% í samfloti með Evrópusambandinu og Noregi, líkt og ráðamenn hafa iðulega komist að orði. 3. Uppfæri aðgerðaráætlun í loftslagsmálum í samræmi við uppfært markmið, sjái til þess að aðgerðirnar séu fullfjármagnaðar og að ráðist verði í þær eins fljótt og mögulegt er. 4. Fasi út notkun jarðefnaeldsneytis í fyrir árið 2035, enda sýnir eldsneytisspá orkustofnunar að það er vænlegasta leiðin til að draga hratt úr notkun jarðefnaeldsneytis og þar af leiðandi losun gróðurhúsalofttegunda. 5. Banni bruna og flutning svartolíu innan 12 mílna landhelgi Íslands. Ávinningur af svartolíubanni á Norðurslóðum myndi strax koma fram. Ísland hefur vissulega unnið að slíku banni á alþjóðavettvangi en best er að byrja heima. 6. Uppfylli ákvæði Parísarsamningsins og heimsmarkmiðs 13.a um að „[e]fnd verði fyrirheit hátekjuríkja um 100 milljarða dala framlag [árlega], bæði frá hinu opinbera og einkaaðilum, í því skyni að aðstoða þróunarlönd við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að gagnsæjum aðgerðum. Jafnframt verði unnið sem fyrst að fjármögnun Græna loftslagssjóðsins svo að hann geti starfað af fullum krafti.“ Og þarf þetta að vera í formi styrkja en ekki lána. 7. Leggi kolefnisgjald á alla losun með það að leiðarljósi að viðkvæmir hópar beri ekki þyngri byrðar. Hingað til hafa stjórnvöld fyrst og fremst veitt fjárhagslegar ívilnanir til þeirra sem hafa efni á að kaupa sér rafmagnsbíla en ekki hækkað gjald losunar sem neinu nemur. Hækka þarf vörugjöld á nýjar vélar og tæki sem brenna jarðefnaeldsneyti. 8. Leggi af framleiðslutengda styrki til landbúnaðar og veiti þess í stað styrki til atvinnustarfssemi og búsetu á landsbyggðinni, einkum í þágu bættrar landnotkunar og náttúruverndar, þ.m.t. skógræktar, landgræðslu og endurheimtar votlendis. 9. Moki ofan í skurði á öllum jörðum í ríkiseigu sem eru ekki í notkun fyrir 2025. 10. Auki verulega rannsóknir, gagnaöflun og aðgengi að upplýsingum um loftslagsmál til að upplýsa ákvarðanatöku og almenning betur um stöðu losunar og aðgerða á Íslandi. 11. Breyti lögum um loftslagsmál svo loftslagsráð geti sinnt því mikilvæga hlutverki að veita stjórnvöld nauðsynlegt aðhald. Einnig þarf að stórbæta stjórnsýslu loftslagsmála.
Loftslagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Óbreyttur hraði orkuskipta dugar ekki til Jarðefnaeldsneytisnotkun Íslendinga verður ennþá yfir þeim mörkum sem þurfa að nást til að Ísland geti staðið við núverandi skuldbindingar sínar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030. Orkumálastjóri segir að skipuleggja verði orkuskipti núna strax til að markmiðin náist á tilskildum tíma. 1. október 2021 08:01 Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira
Óbreyttur hraði orkuskipta dugar ekki til Jarðefnaeldsneytisnotkun Íslendinga verður ennþá yfir þeim mörkum sem þurfa að nást til að Ísland geti staðið við núverandi skuldbindingar sínar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030. Orkumálastjóri segir að skipuleggja verði orkuskipti núna strax til að markmiðin náist á tilskildum tíma. 1. október 2021 08:01