Við dómsuppkvaðningu sagði dómarinn að morð Everard hefði verið ógeðfellt og grimmilegt. Hann sagði Couzens hafa skipulagt ódæðið í þaula og varið minnst mánuði í að undirbúa sig. Miðað við undirbúninginn hafi Couzens ætlað sér að leita uppi konu til að nauðga og myrða og hafði hann leigt bíl sem leit út eins og lögreglubíll.
Þá sagði dómarinn að þrátt fyrir að hann hefði játað morðið, hefði Couzens aldrei gert fyllilega grein fyrir því sem gerðist þegar hann myrti Everard.
Everard var 33 ára gömul. Hvarf hennar vakti mikla athygli í Bretlandi og grimmilegt morð hennar beindi í kjölfarið kastljósinu að öryggi kvenna þar í landi.
Þegar hún var að ganga heim frá vini sínum þann 3. mars notaði Couzens starf sitt sem lögregluþjónn til að handtaka hana á fölskum forsendum fyrir að brjóta sóttvarnarlög. Hann handjárnaði hana og færði hana í bíl sem hann hafði leigt degi áður.
Couzens keyrði rúmlega hundrað kílómetra til strjálbýls svæðis í Kent þar sem hann færði Everard yfir í annan bíl, nauðgaði henni og kyrkti hana svo með lögreglubelti sínu. Því næst flutti hann lík hennar inn í skóg nærri Ashford í Kent og brenndi það. Seinna meir flutti hennar að nærliggjandi tjörn og skildi það eftir þar.
Nokkrum dögum eftir það fór Couzens með eiginkonu sinni og börnum í gönguferð á þetta sama svæði.
Couozens hafði leigt bílinn sem hann var á degi áður og meðal annars keypt límband til að nota við mannránið sem hann ætlaði að fremja.
Lögreglan í London birti í gær yfirlýsingu þar sem glæpur Couzens var sagður viðurstyggilegur og Couzens sagður hafa svikið allt það sem lögreglan stæði fyrir. Þá stóð í yfirlýsingunni að hugur lögregluþjóna væri hjá fjölskyldu Everard. Lögreglan ætlar ekki að tjá sig frekar fyrr en dómsmálinu gegn Couzens er lokið.
Saksóknarar sögðu glæp lögregluþjónsins fyrrverandi vera svo alvarlegan að hann ætti að vera dæmdur í lífstíðarfangelsi, sem í Bretlandi þýðir nákvæmlega það. Couzens mun að líkindum aldrei verða sleppt úr fangelsi.
Verjandi Couzens sagði hann fullan iðrunar og sagði að ekki ætti að dæma hann í meira en 30 ára fangelsi. Í dómsal í dag sagði hann að Couzens þyrfti á meðferð að halda, svo komast mætti að því af hverju hann hefði framið þetta ódæði.
Geðlæknir hefur rætt við Couzens og komist að þeirri niðurstöðu að hann þjáðist mögulega af vægu þunglyndi. Það tengdist ákvörðun hans að myrða Everard þó ekkert, samkvæmt dómaranum.
Hér má sjá sjónvarpsfrétt Sky News þar sem meðal annars er farið er yfir síðasta kvöld Söruh Everard og rætt við lögregluþjón sem kom að rannsókninni á morði hennar.
What happened the night Wayne Couzens killed Sarah Everard?
— Sky News (@SkyNews) September 30, 2021
Sky News speaks to an officer who worked on the case as a court hears what happened the night she was murdered by Wayne Couzens.
Read more here: https://t.co/YrQEEf1fOB pic.twitter.com/O29pNzjSd5
Neitaði að horfa í augu fjölskyldu hennar
Fjölskyldumeðlimir Everard lásu yfirlýsingar í dómsalnum í gær og þá sögðust foreldrar hennar og systir aldrei geta fyrirgefið Couzens. Á einum tímapunkti krafðist faðir Everard þess að lögregluþjónninn liti í augu hans en sá neitaði og horfði hann niður á gólfið allan tímann.
Susan Everard, móðir Söruh, sagði dóttur sína hafa dáið við hræðilegar kringumstæður og hún gæti ekki hætt að hugsa um hvað Sarah þurfti að þola á sínum síðustu stundum. Hún hafi verið ein með manni sem vildi henni mein og hafi eflaust verið mjög óttaslegin.
„Að hugsa um það er óbærilegt,“ sagði Susan Everard, samkvæmt Sky News.

Jeremy Everard, faðir Söruh, krafðist þess að Couzens hofði á sig, sem hann gerði ekki. Hann sagðist sömuleiðis ekki geta hætt að hugsa um þjáningar dóttur sinnar og sagðist aldrei geta fyrirgefið lögregluþjóninum.
„Þú brenndir lík dóttur minnar,“ sagði Jeremy. Hann sagði Couzens hafa kvalið þau frekar með því að segja ekki hvort hann hefði brennt Söruh Everard lifandi eða látna.
„Engin refsing sem þú færð mun vera sambærileg þeim sársauka og kvölum sem þú hefur valdið okkur,“ sagði hann.
Sagði Couzens vera skrímsli
Katie Everard, systir Söruh, sagði Couzens vera skrímsli. Hann hafði komið fram við systur hennar eins og rusl. Hann hefði tekið eigin sjúku þarfir fram fyrir líf hennar og losað sig við lík hennar eins og rusl.
Hún sagðist sömuleiðis ekki geta hætt að hugsa um kvalir systur sinnar.
„Við getum aldrei fengið Söruh aftur. Síðustu augnablik lífs hennar eru sífellt í huga mér,“ sagði hún.