Lífskjarasamningurinn lifir enn Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2021 17:00 Forsvarsmenn ASÍ sögðu í síðustu viku að þau vildu halda samningnum áfram og þá meðal annars vegna þess að fólk eigi inni launahækkanir og vegna þess að þau vildu ekki koma vinnumarkaðnum í uppnám samhliða stjórnarviðræðum. Vísir/vilhelm Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands ætla ekki að segja upp lífskjarasamningnum svokallaða. Hann mun því halda gildi sinn út samningstímann og renna út þann 1. nóvember á næsta ári.
Í sameiginlegri tilkynningu frá ASÍ og SA segir að samninganefnd ASÍ og framkvæmdastjórn SA hafi komið saman í dag og fundað um framhald samningsins frá 2019. Samkvæmt skilmálum hans getur hvor aðili sagt honum upp fyrir klukkan fjögur þann 30. september. Í tilkynningunni segir að á fundinum í dag hafi komið fram vilji beggja samtaka að samningar standi áfram. ASÍ hefur sagt að stjórnvöld hafi ekki staðið við gefin loforð vegna lífskjarasamningsins. Forsendunefnd ASÍ og SA komst að þeirri niðurstöðu að margar forsendur samningsins væru brostnar. Var þar um að ræða forsendur sem sneru að lífeyri, húsleigu, kennitöluflakki og vinnumarkaði. Sjá einnig: Framtíð lífskjarasamningsins ræðst eftir helgi Forsvarsmenn ASÍ sögðu í síðustu viku að þau vildu halda samningnum áfram og þá meðal annars vegna þess að fólk eigi inni launahækkanir og vegna þess að þau vildu ekki koma vinnumarkaðnum í uppnám samhliða stjórnarviðræðum. Samtök atvinnulífsins sögðu þó að ekki væri búið að taka ákvörðun. Sú ákvörðun hefur nú verið tekin.
Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira