Ný kynslóð íslenskra leikstjóra á RIFF 2021 Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 27. september 2021 17:00 Stilla úr Heartless. Bríet Ísis Elfar og Jóhann Kristófer Stefánsson, betur þekktur sem Joey Christ. Riff – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer nú fram í átjánda sinn frá 30. september til 10. október.
Sem fyrr býður hátíðin upp á tvo íslenska stuttmynda flokka og skapar á þann hátt miðlægan sýningar vettvang fyrir grasrótarstarf í íslenskri kvikmyndagerð. Einni stuttmynd sem þykir skara fram úr eru veitt sérstök verðlaun en í dómnefnd hennar sitja Nathalie Mierop, kynningarstjóri kvikmynda í fullri lengd hjá SEE NL, Þóra Björg Clausen, dagskrárstjóri Stöðvar 2 og Anton Máni Svansson, framleiðandi hjá Join Motion Pictures. Í fyrri stuttmynda flokknum finnast m.a. tvær myndir sem kepptu á kvikmyndahátíðinni í Cannes, sem er fágætt fyrir íslenskar myndir. Annars vegar er það stuttmyndin Frie Mænd eða Frjálsir menn, útskriftarmynd Óskar Kristins Vignissonar úr Konunglega danska kvikmyndaskólanum, sem margir bíða spenntir eftir og fjallar um vináttu tveggja karlmanna sem vinna í fiskvinnslu, og hins vegar Céu De Agosto eða Ágústhiminn eftir brasilísku kvikmyndagerðarkonuna Jasmin Tenucci, en myndin er brasilísk-íslensk samframleiðsla og greinir frá hjúkrunarfræðingi sem leitar á náðir hvítasunnusöfnuðar á sautjánda degi skógarbruna í Amazon-frumskóginum. Free Men Eldingar eins og við er fyrsta leikstjórnarverkefni Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttir, einnig þekkt sem tónlistarkonan Kira Kira, sem mun flytja tónlist í tengslum við sýningu myndarinnar 2. október. Frenjan eftir Þóreyju Mjallhvíti H. Ómarsdóttir segir frá konu á miðjum aldri sem verður sífellt önugri er kúahjörð tekur yfir borgina en hún er sú eina sem tekur eftir skepnunum, Arndís Hrönn Egilsdóttir fer með aðalhlutverk. Poppstjörnurnar Jóhann Kristófer Stéfansson (Joey Christ) og Bríet fara með aðalhlutverkin í Egginu, ástarsögu í framtíðarsamfélagi þar sem hverjum og einum er skipaður nýr maki af handahófi á sjö ára fresti, en myndinni er leikstýrt af Hauki Björgvinssyni. Klettur aldanna eftir Eron Sheean greinir frá hermanni á flótta sem rekst á talandi klett og skartar Tómasi Lemarquis og Ólafi Darra Ólafssyni í aðalhlutverkum. Þessi stuttmynda flokkur er virkilega sterkur í ár. We The Lightnings Hinn flokkurinn er skipaður nema myndum og koma þær úr ýmsum áttum. Þetta eru Round 0 eftir Soniu L. Shiavone, Tveir fuglar eftir Önnu Karen Eyjólfsdóttur, Eftirsjón eftir Björn Rúnarsson, Hik eftir Ingibjörgu Jenný Jóhannesdóttur og Elín Pálsdóttur, Sólarupprás eftir Sigrúnu Mathiesen og Síðasti séns eftir Ástu Sól Kristjánsdóttur. Sýningarnar eru eftirfarandi: Íslenskar stuttmyndir 02.10 Bíó Paradís 1 kl. 12.00 + Q&A 10.10 Bíó Paradís 1 kl. 13.00 Íslenskar nemastuttmyndir 03.10 Bíó Paradís 1 kl 10.45 + Q&A 07.10 Bíó Paradís 2 kl. 15.00 Einnig má þess geta að fimm íslenskar stuttmyndir eru sýndar á hátíðinni í öðrum flokkum. Ólafur Arnalds: Er við fæðumst sýnir lifandi flutning á tónlist Ólafs og skyggnist í hugarheim tónskáldsins þar sem einstakrar upplifunar af einingu náttúru, vitundar og listar er notið. Ólafur leikstýrir myndinni ásamt Vincent Moon. When We Are Born Horfin borg, í leikstjórn Magnúsar Andersen, er óður til Reykjavíkur þá og nú, innblásinn af samnefndu lagi Úlfs Eldjárns. Þessar tvær myndir eru hluti af tónlistarmyndaflokki hátíðarinnar eða Cinema Beats á ensku. Tvær íslenskar stuttmyndir keppa um Gullna Eggið, þar sem stuttmyndir þátttakenda í kvikmyndasmiðju hátíðarinnar, Talent Lab, eru sýndar. Þetta eru myndirnar Í gegnum stórmarkaðinn í fimm hlutum eftir Önnu-Mariu Jóakimsdóttir Hutri, dansmynd sem kjarnar hversdags raunir nútíma fjölskyldunnar við vikulega matarsöfnun, og Panikkprósi eftir Ernu Mist sem er ljóðrænn vitnisburður um einangrun, firringu og þýðingu þess að týnast í félagsskap við sjálfan sig. Hundred Years of Revolution Síðast en ekki síst er það stuttheimildarmyndin MÍR: Byltingin lengi lifi eftir Hauk Hallsson, um hana segir: „Félagið MÍR var stofnað árið 1950 í þeim tilgangi að efla menningartengsl Íslands og Ráðstjórnarríkjanna. Enn þann dag í dag heldur félagið lífi í byltingunni með vikulegum sýningum á gömlum sovéskum kvikmyndum.“ Myndin er sýnd sem hluti af „sovéskri tvennu“ með myndinni Village Detective: A Song Cycle eftir Bill Morrison, og er hluti af heimildarmynda dagskrá hátíðarinnar.
Bíó og sjónvarp RIFF Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira