Víkingar hafa aldrei unnið Leiknismenn í efstu deild Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2021 14:16 Sævar Atli Magnússon skoraði bæði mörk Leiknis í fyrri leiknum en hann verður ekki með liðinu á morgun enda orðin leikmaður danska félagsins Lyngby. Vísir/Hulda Margrét Víkingur verður Íslandsmeistari í knattspyrnu á morgun ef liðið vinnur lokaleik sinn á móti Leikni. Það hafa Víkingar þó aldrei afrekað áður í sögunni í deild þeirra bestu.
Víkingur hefur vissulega unnið Leiknismenn í B-deildinni en þegar kemur að leikjum í úrvalsdeildinni þá hafa þeir aldrei landað sigri á móti Leikni. Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í efstu deild þar á meðal í Efra-Breiðholtinu fyrr í sumar. Leiknismenn unnu þá 2-1 sigur eftir að hafa komist í 2-0 í leiknum. Markaskorari Leiknismanna, Sævar Atli Magnússon, verður þó ekki á svæðinu á morgun því hann er nú leikmaður danska félagsins Lyngby. Sævar skoraði mörk Leiknismanna á 34. og 61. mínútu en Nikolaj Andreas Hansen minnkaði muninn fyrir Víkinga tólf mínútum fyrir leikslok. Liðin mættust líka tvisvar sinnum í Pepsi deildinni sumarið 2015. Leiknir vann þá 2-0 sigur í heimaleiknum í maí en liðin gerðu síðan 1-1 jafntefli í Víkinni í ágúst. Mörk Leiknismanna í heimasigrinum skoruðu Sindri Björnsson og Kamerúnmaðurinn Charley Roussel Fomen. Í jafnteflisleiknum skoraði Halldór Smári Sigurðsson sjálfsmark á 87. mínútu en Ívar Örn Jónsson jafnaði metin fyrir Víkinga úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Víkingar hafa því aðeins fengið eitt stig af níu mögulegum út úr innbyrðis leikjum sínum á móti Leikni Reykjavík í úrvalsdeildinni en Leiknismenn hafa á móti haft sjö stig upp úr krafsinu. Víkingar hafa því ekki aðeins aldrei náð að vinna Leiknismenn í úrvalsdeild karla því þeir hafa aldrei komist yfir í leikjum liðanna. Leiknismenn hafa aftur á móti verið yfir í samtals 120 mínútur í leikjum sínum á móti Víkingum. Knattspyrnusamband Íslands
Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Leiknir Reykjavík Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira