Kvarta yfir „eitraðri framkomu“ stjórnenda Hugarafls Samúel Karl Ólason og Frosti Logason skrifa 20. september 2021 19:38 Sjálfsvíg unnustu Stefáns Þórs Stefánssonar var vendipunktur fyrir hann og aðra varðandi starfsemi Hugarafls. Hann er einn þeirra sex sem hafa sent erindi til Félagsmálaráðuneytisins. Sex fyrrverandi skjólstæðingar grasrótarsamtakanna Hugarafls sendu nýverið greinargerðir á félagsmálaráðuneytið vegna starfs- og stjórnunarhátta samtakanna og framkomu formanns gagnvart félagsmönnum. Hópurinn segir framkomu stjórnenda samtakanna eitraða og hún lýsi sér meðal annars í einelti og ógnarstjórnun gegn almennum félagsmönnum. Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að bata sínum. Stefán Þór Stefánsson er í hópnum sem um ræðir. Hann hefur á undanförnum árum unnið sig út úr kvíða og þunglyndi sem hrjáðu hann til langs tíma. Árið 2015 kynntist hann Hugarafli og hefur verið virkur í starfseminni síðan. Fyrr á þessu ári missti Stefán unnustu sína, Tinnu Finnsdóttur, í sjálfsvígi en hún hafði verið skjólstæðingur Hugarafls og er að sögn Stefáns ein þeirra sem hlaut mjög ómaklega meðferð af hálfu stjórnenda samtakanna. Hann sagði Tinnu hafa lýst fyrir sér undarlegum uppákomum og hegðun stjórnanda sem hann kannaðist sjálfur við en hafði þó leitt hjá sér. Það var síðan ekki fyrr en þau Tinna fóru að vera saman sem par, í byrjun þessa árs, sem hann fór að átta sig á að framkoma stjórnanda Hugarafls gagnvart henni hafi ekki verið eðlileg. Frásagnir Tinnu af því andlega ofbeldi sem hún varð fyrir í Hugarafli hafi opnað augu hans fyrir því að umhverfið þarna væri ekki eins og það ætti að vera en helsti gerandinn í því ofbeldi var að sögn Stefáns, aðal stjórnandi samtakanna. Stefán sagði sögu sína og Tinnu í Ísland í dag í kvöld. Hér má sjá þátt kvöldsins. Stefán og aðrir fyrrverandi skjólstæðingar Hugarafls sendu félagsmálaráðuneytinu fyrir nokkrum vikum samantekt greinargerða vegna starfs- og stjórnunarhátta samtakanna og framkomu formanns gagnvart félagsmönnum. Ráðuneytið hefur fjármagnað samtökin með samningi til ársins 2022. Í þessari samantekt eru frásagnir af einelti, útilokun, ógnarstjórnun og eitraðri framkomu stjórnanda í garð óbreyttra félagsmanna sem í daglegu máli eru kallaðir notendur í tungutaki Hugarafls. Frásagnirnar greina frá því að samtökin séu miklu frekar einskonar sértrúarsöfnuður þar sem stjórnandinn Auður Axelsdóttir og eiginmaður hennar stýra með harðri hendi, á sama tíma og samtökin gefa sig út fyrir að starfa á jafningjagrunni og valdeflingu þar sem allir félagsmenn eigi að vera jafnir gagnvart ákvarðanatöku innan félagsins. Þar segir að margir hafi hröklast frá samtökunum vegna þessara starfshátta. Hafna ásökunum og geta ekki tjáð sig Forsvarsmenn Hugarafls hafna þessum ásökunum alfarið. Stjórn samtakanna segir í yfirlýsingu að hún harmi þessar ásakanir og segir að svo virðist sem þeim sé ætlað að kasta rýrð á samtökin. Þá segir stjórnin að ekki sé hægt að svaraði ásökununum í efnisatriðum vegna þagnarskyldu og það sé þeim fyrrverandi félagsmönnum sem hafa stigið fram kunnugt. Þar að auki segir stjórnin að ekkert erindi hafi borist frá Félagsmálaráðuneytinu og þegar það gerist verði því svarað í öllum atriðum. Fréttamaður Stöðvar 2 upplýsti í morgun framkvæmdastjóra Hugarafls um að hópur fyrrverandi félagsmanna beri á samtökin og yfirstjórn félagsins mjög alvarlegar ásakanir. Nefnd eru orð eins og einelti og ógnarstjórnun sem á að hafa viðgengist. Stjórn Hugarafls harmar þessar ásakanir og vill benda á mikilvægi þess að spara hér stór orð. Ásakanir sem þessar virðast til þess ætlaðar að kasta rýrð á samtökin og þykir okkur það mjög miður. Stjórn Hugarafls telur það mjög alvarlegt að ásakanir sem þessar séu notaðar til að vega að starfi félagsins sem snertir mikinn fjölda félagsmanna og þeirra bataferli. Ásökunum þessum er hafnað alfarið. Einstaklingum innan þessa hóps hefur ítrekað verið boðið í samtal við stjórn en hafa afþakkað samtal. Vegna þagnarskyldu munum við ekki getað svarað þessum ásökunum í efnisatriðum. Þeim fyrrverandi félagsmönnum sem hér stíga fram er vel kunnugt um að okkur er ekki leyfilegt að ræða einstök trúnaðarmál. Varðandi kvörtun til Félagsmálaráðuneytisins skal tekið fram að stjórn Hugarafls hefur ekki borist erindi frá ráðuneytinu. Þegar kvörtunin berst samtökunum mun henni að sjálfsögðu vera svarað í öllum atriðum. Fyrir hönd stjórnar Hugarafls Málfríður Hrund Einarsdóttir formaður Forsvarsmenn boðaðir á fund á næstunni Félagsmálaráðuneytið styrkti Hugarafl um átta milljónir króna í lok síðasta árs. Sá styrkur snýr að rekstri opins úrræðis þetta ár og það næsta. Ísland í dag sendi Félagsmálaráðuneytinu fyrirspurn við vinnslu þáttar kvöldsins og svör bárust skömmu fyrir útsendingu. Þar segir að starfsmenn ráðuneytisins hafi skoðað þau gögn sem sexmenningarnir sendu og telji ábendingarnar alvarlegar. Enn sé verið að skoða málið og forsvarsmenn Hugarafls verði boðaðir á fund á næstunni. Enn fremur segir þar að þegar öll gögn málsins liggi fyrir verði lagt mat á hvort og þá hvaða áhrif málið muni hafa á frekara samstarf við Hugarafl. Fólki með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið. Nánari upplýsingar hér. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218. Ísland í dag Geðheilbrigði Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira
Fréttamaður Stöðvar 2 upplýsti í morgun framkvæmdastjóra Hugarafls um að hópur fyrrverandi félagsmanna beri á samtökin og yfirstjórn félagsins mjög alvarlegar ásakanir. Nefnd eru orð eins og einelti og ógnarstjórnun sem á að hafa viðgengist. Stjórn Hugarafls harmar þessar ásakanir og vill benda á mikilvægi þess að spara hér stór orð. Ásakanir sem þessar virðast til þess ætlaðar að kasta rýrð á samtökin og þykir okkur það mjög miður. Stjórn Hugarafls telur það mjög alvarlegt að ásakanir sem þessar séu notaðar til að vega að starfi félagsins sem snertir mikinn fjölda félagsmanna og þeirra bataferli. Ásökunum þessum er hafnað alfarið. Einstaklingum innan þessa hóps hefur ítrekað verið boðið í samtal við stjórn en hafa afþakkað samtal. Vegna þagnarskyldu munum við ekki getað svarað þessum ásökunum í efnisatriðum. Þeim fyrrverandi félagsmönnum sem hér stíga fram er vel kunnugt um að okkur er ekki leyfilegt að ræða einstök trúnaðarmál. Varðandi kvörtun til Félagsmálaráðuneytisins skal tekið fram að stjórn Hugarafls hefur ekki borist erindi frá ráðuneytinu. Þegar kvörtunin berst samtökunum mun henni að sjálfsögðu vera svarað í öllum atriðum. Fyrir hönd stjórnar Hugarafls Málfríður Hrund Einarsdóttir formaður
Fólki með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið. Nánari upplýsingar hér. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218.
Ísland í dag Geðheilbrigði Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira