Þrjú íslensk töp í þýska handboltanum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. september 2021 15:43 Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer töpuðu gegn Hannover-Burgdorf í dag. vísir/hulda margrét Þrem leikjum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta er lokið í dag. Íslendingar voru í eldlínunni í þeim öllum, en engum þeirra tókst að vinna.
Mikið jafnræði var með liðinum þegar að Ýmir Örn Gíslason og félagar hans í Rhein-Neckar Löwen heimsóttu Hamburg. Liðin skiptust á að hafa forystuna og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 16-15, Hamburg í vil. Seinni hálfleikur bauð upp á meira af því sama, en liðin héldu áfram að skiptast á að hafa forystuna. Munurinn varð mestur tvö mörk í seinni hálfleik, þangað til undir lokin þegar Hamburg skoraði sex mörk í röð og breytti stöðunni í 32-27, sem urðu lokatölur leiksins. Ýmir Örn og félagar hafa unnið einn af fyrstu þrem leikjum tímabilsins og sitja í tólfta sæti með tvö stig. Daníel Þór Ingason og félagar hans í HBW Balingen-Weilstetten þurftu að sætta sig við sex marka tap á útivelli gegn Tus N-Lubbecke. Heimamenn í Lubbecke tóku forystuna á fyrstu mínútu og litu aldrei um öxl. Daníel og félagar náðu þó að minnka muninn í niður í eitt mark snemma í seinni hálfleik eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hléi, en nær komust þeir ekki og lokatölur urðu 33-27. Þá þurftu Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer að þola átta marka tap gegn Hannover-Burgdorf. Arnór skoraði tvö mörk í leiknum, en Hannover-Burgdorf hafði frumkvæðið allan leikinn og unnu að lokum 28-20.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira