Juventus og AC Milan gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Juventus hefur ekki enn unnið leik þegar fjórar umferðir eru búnar af deildinni.
Álvaro Morata kom Juventus yfir á 4. mínútu eftir að hafa fengið sendingu í gegnum vörn AC Milan frá Paulo Dybala. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik og staðan 1-0 Juventus í vil er flautað var til loka fyrri hálfleiks.
Um miðbik síðari hálfleiks fengu gestirnir hornspyrnu. Sandro Tonali slengdi boltanum fyrir markið og Ante Rebić stangaði hann í netið. Staðan orðin 1-1 og viti menn, það reyndust lokatölur leiksins.
Þegar fjórar umferðir eru búnar eru Juventus með aðeins tvö stig á meðan AC Milan er jafnt nágrönnum sínum í Inter á toppi deildarinnar með 10 stig.