Joachim Trier og Mia Hansen - Löve hljóta heiðursverðlaun RIFF á Bessastöðum Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 16. september 2021 18:00 Handhafar heiðursverðlauna RIFF í ár. Aðsent Kvikmyndaleikstjórarnir Joachim Trier frá Noregi og Mia Hansen - Löve frá Frakklandi hljóta heiðursverðlaun RIFF í ár fyrir framúrskarandi listræna sýn.
Verðlaunin verða afhent af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á setningardegi RIFF þann 30. september næstkomandi en sama dag verða þau með meistaraspjall í Gamla bíói við kvikmyndaleikstjórana Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og Hafstein Gunnar Sigurðsson sem er öllum opið. „Það er óhætt að fullyrða að Joachim og Mia séu með áhugaverðustu og eftirsóttustu ungu leikstjórum samtímans og því er það mikill heiður að þau hafi þekkst boðið um að koma á RIFF. Þau voru bæði með nýjar myndir í Cannes í sumar sem fengu afbragðs dóma og verða þær sýndar á RIFF ásamt eldri myndum þeirra. Mynd Joachims Versta manneskja í heimi hlaut verðlaun í Cannes fyrir besta kvenleik. Bergman Eyja eftir Miu hlaut mikla athygli og lof gagnrýnanda í Cannes í sumar,“ segir í tilkynningu frá RIFF. Versta manneskja í heimi ( Worst person in the World) eftir Joachim Trier er er opnunarmynd RIFF. Borgarstjóri Dagur B. Eggertsson mun setja hátíðina við hátíðlega athöfn í Gamlabíói þann 30. september næstkomandi. Joachim Trier Joachim þykir einn áhugaverðasti leikstjóri á Norðurlöndunum um þessar mundir og er sagður hafa mótandi áhrif þegar kemur að nútíma kvikmyndagerð þrátt fyrir ungan aldur. Hann steig sín fyrstu skref bak við myndavélina við gerð hjólabrettamyndbanda sem unglingur. Síðar stundaði hann kvikmyndagerðarnám í Danmörku og Bretlandi þar sem stuttmyndir hans vöktu strax mikla athygli. Fyrstu tvær kvikmyndir hans í fullri lengd, Reprise (2006) og Ósló 31. ágúst (2011), gerast í höfuðborg Norðmanna og mætti lýsa sem klassískum raunsæissögum af ungu fólki á krossgötum. Báðar nutu mikillar velgengni á kvikmyndahátíðum beggja vegna Atlantshafsins. Þeim fylgdi hann eftir með frumraun sinni á enskri tungu, Louder Than Bombs (2015), sem skartar stjörnum á borð við Isabelle Huppert og Jesse Eisenberg en sú mynd verður sýnd á hátíðinni auk nýjustu myndar Joachims The Worst Person in the World opnunarmynd RIFF í ár. Þriðja myndin úr smiðju Joachims verður Ósló, 31. ágúst / Oslo, August 31st og fjallar um dag í lífi Anders, fíkils í bata, sem fer í leyfi frá meðferðarstofnun í einn dag til að fara í atvinnuviðtal. Mia Hansen-Løve Mia fæddist í París árið 1981 og lærði leiklist og starfaði sem gagnrýnandi áður en hún fann fjöl sína sem leikstjóri. Höfundarverk hennar samanstendur af sjö kvikmyndum í fullri lengd sem hafa hlotið verðlaun (Silfurbjörninn á Berlínarhátíðinni m.a.) og lof áhorfenda sem og gagnrýnanda. Kvikmyndir hennar eru einkar persónulegar og blanda því sjálfsævisögulega og skáldaða á merkilegan máta. Þaulhugsaður og hófstilltur stíll, sem hefur verið lýst sem gagnsæum, er sérkenni myndanna og leiðir áhorfendur rakleitt inn í söguheiminn. Frásagnirnar, jafnan gáfulegar, einkennast af miklum samtölum og setja persónusköpun og andrúmsloft í forgrunn. Einstakar og tilfinningalega djúpar kvikmyndir hennar skipa framvarðasveit franska bíósins í dag. Eins og áður sagði verða þrjár myndir sýndar eftir Miu á hátíðinni og eiga þær allar sammerkt að vera lýsandi fyrir stíl hennar en það er Bergman eyja/Bergman Island um par sem lokar sig af á eyju í gömlu afdrepi Ingmars Bergman til að ljúka við kvikmyndahandrit. Það sem verður/Things to Come fjallar um ástríðufulla konu sem er heimspekiprófessor, leikin af Isabelle Huppert. Þegar eiginmaður hennar yfirgefur hana fyrir aðra konu, öðlast hún óvænt frelsi. Að lokum er það Eden saga um táninginn Paul. Hann stofnar plötusnúðahóp ásamt vinum sínum og í sameiningu demba þeir sér í nætur kynlífs, vímuefna og tónlistar. „Í gegnum árin hefur RIFF valið listamenn í kvikmyndageiranum sem þótt hafa sýnt sérstaka listræna sýn eða markað djúp spor í sögu kvikmyndagerðar með framlagi sínu á alþjóðlegum vettvangi. Meðal þeirra sem áður hafa hlotið verðlaunin eru leikarinn Mads Mikkelsen og kvikmyndaleikstjórarnir Milos Forman, Jim Jarmusch, Peter Greenaway og Susanne Bier. Að vanda er heill flokkur tileinkaður verðlaunahöfunum og verða til sæmia þrjár myndir eftir bæði Miu og Joachim sýndar á hátíðnni.“
Forseti Íslands RIFF Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Trine Dyrholm mætir á frumsýningu Margrétar fyrstu á RIFF Margrét fyrsta eða MARGRETE DEN FØRSTE er lokamynd RIFF Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í í Reykjavík í ár. Hátíðin verður haldin í átjánda sinn þann 30. september og stendur til 10. október. 16. september 2021 14:06 Síðasta mynd Árna Ólafs verður opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF „Síðasta mynd hins ástkæra leikstjóra Árna Ólafs Ásgeirssonar sem lést fyrr á þessu ári verður frumsýnd sem opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF sem hefst í lok mánaðar,“ segir í nýrri tilkynningu frá RIFF. 13. september 2021 10:32 Raufarhólshelli breytt í bíósal í fyrsta skipti á RIFF Á RIFF í ár verður ævintýramynd með David Bowie sýnd í iðrum jarðar. Takmarkaður fjöldi miða verður í boði en miðasala hófst nú klukkan fjögur. 10. september 2021 17:02 Mest lesið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Fleiri fréttir Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Sjá meira
Trine Dyrholm mætir á frumsýningu Margrétar fyrstu á RIFF Margrét fyrsta eða MARGRETE DEN FØRSTE er lokamynd RIFF Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í í Reykjavík í ár. Hátíðin verður haldin í átjánda sinn þann 30. september og stendur til 10. október. 16. september 2021 14:06
Síðasta mynd Árna Ólafs verður opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF „Síðasta mynd hins ástkæra leikstjóra Árna Ólafs Ásgeirssonar sem lést fyrr á þessu ári verður frumsýnd sem opnunarmynd flokksins Ísland í sjónarrönd á RIFF sem hefst í lok mánaðar,“ segir í nýrri tilkynningu frá RIFF. 13. september 2021 10:32
Raufarhólshelli breytt í bíósal í fyrsta skipti á RIFF Á RIFF í ár verður ævintýramynd með David Bowie sýnd í iðrum jarðar. Takmarkaður fjöldi miða verður í boði en miðasala hófst nú klukkan fjögur. 10. september 2021 17:02