Í nýrri kitlu fyrir Æði 3 má sjá að það verður nóg um drama eins og sjá má í spilaranum hér fyrir neðan. Patti, Bassi og Binni eru mættir aftur til leiks og hefur frægðarsól þeirra aldrei skinið jafn skært. Leikstjóri þáttanna er eins og áður Jóhann Kristófer Stefánsson.
Í þriðju seríu af Æði halda þremenningarnir uppi viðteknum hætti þótt margt hafi breyst frá því við sáum þá síðast. Fjölskyldan og heimilið spilar stærri sess í lífi Patta og hann reynir að átta sig á hver hans næstu skref ættu vera í lífinu. Bassi er orðinn frægur rappari og setur tónlistina í fyrsta sætið, en frægðin hefur tekið sinn toll. Binni Glee er enn ketó og gerir aðra atlögu að því að flytja til Reykjavíkur en það reynist honum mikil áskorun.
Lífið er kannski ekki alltaf dans á rósum en hjá þessum vinum er lífið alltaf Æði. Brot úr nýju þáttaröðinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.