Samningi Arons í Póllandi rift Sindri Sverrisson skrifar 31. ágúst 2021 17:31 Aron Jóhannsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Lech Poznan og verður frá keppni næstu mánuðina. lechpoznan.pl/Przemysław Szyszka Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson mun ekki leika meira fyrir pólska félagið Lech Poznan. Aron og félagið tóku sameiginlega ákvörðun um að rifta samningi hans sem gilda átti til áramóta.
Í tilkynningu frá Lech Poznan segir að vegna alvarlegra axlarmeiðsla þurfi Aron að halda sig frá fótbolta fram að áramótum. Hann axlarbrotnaði í leik með varaliði félagsins, eftir að hafa skorað tvö mörk, í leik 7. ágúst. Aron kom til Íslands í síðustu viku til að fara í endurhæfingu og í kjölfarið var sú ákvörðun tekin að hann yrði laus allra mála hjá Lech Poznan. Aron kom til Lech Poznan síðasta vetur og lék tíu leiki fyrir aðallið félagsins, og skoraði tvö mörk. Aron, sem er þrítugur, hefur verið afar óheppinn með meiðsli á sínum ferli. Hann hóf atvinnumannsferilinn með AGF í Danmörku árið 2010 eftir að hafa leikið með Fjölni hér á landi. Hann skoraði grimmt fyrir AGF og einnig AZ Alkmaar í Hollandi áður en hann var seldur til Werder Bremen í Þýskalandi sumarið 2015. Í Þýskalandi náði Aron sér aldrei á strik, enda glímdi hann við ítrekuð meiðsli. Hann fór svo til Hammarby í Svíþjóð og gekk í endurnýjun lífdaga í fyrra þegar hann skoraði 12 mörk í sænsku úrvalsdeildinni.
Fótbolti Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Grátleg niðurstaða Birnis og Gísla „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fertugasti leikur Glódísar og félaga í röð án taps Tímabilið búið hjá Rodri? Bara tvær fljótari en Sveindís Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Sjá meira