Ákvörðunin féll ekki vel í kramið hjá notendum síðunnar, hvort sem um er að ræða neytendur eða framleiðendur klámefnis. Til stóð að bannið tæki gildi 1. október næstkomandi.
Nú greinir OnlyFans frá því á Twitter að hætt hafi verið við áður boðað bann.
„Takk fyrir að þið hafið látið heyra í ykkur,“ segir í færslunni.
Thank you to everyone for making your voices heard.
— OnlyFans (@OnlyFans) August 25, 2021
We have secured assurances necessary to support our diverse creator community and have suspended the planned October 1 policy change.
OnlyFans stands for inclusion and we will continue to provide a home for all creators.
Fyrri áætlanir voru rökstuddar á þann veg að bankar og greiðslumiðlanir hafi þrýst á fyrirtækið að stöðva dreifingu klámefnis.
OnlyFans var stofnað árið 2016 og telja notendur síðunnar nú um 130 milljónir. Síðunni er ætlað að tryggja að framleiðendur efnis fái greitt beint frá neytendum efnisins og þar með koma í veg fyrir milliliði.