Kemur til Ísafjarðar eftir að hafa keppt á Ólympíuleikunum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. júlí 2021 09:01 Kenya Kasahara í leik gegn íslenska landsliðinu á HM 2019. Hann mun spila með Herði Ísafirði í vetur. TF-Images/Getty Images Handknattleiksliðið Hörður Ísafjörður hefur heldur betur styrkt sig fyrir komandi tímabil í næstefstu deild hér á landi. Liðið hefur sótt þrjá erlenda leikmenn, þar af einn frá Japan sem mun taka þátt á Ólympíuleikunum sem fara af stað síðar í dag.
Frá þessu var greint á Facebook-síðu félagsins en þar segir að þeir Mikel Amilibia frá Spáni, Levente Morvaj frá Ungverjalandi og Kenya Kasahara frá Japan myndu leika með félaginu í vetur. Amilibia og Morvaj sömdu til tveggja ára. Stærsta nafnið er Kasahara en hann er einn af lærisveinum Dags Sigurðssonar í japanska landsliðinu. Mun hann taka þátt á Ólympíuleikunum í heimalandinu og ganga síðan til liðs við Ísafjarðarliðið. Um er að ræða stóran og sterkbyggðan 33 ára gamlan línumann sem lék einnig með Japan á heimsmeistaramótinu 2019. Amilibia er 23 ára gamall og leikur í stöðu hægri skyttu. Hann á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Spánar. Morvaj er 21 árs gamall vinstri hornamaður sem var einkar efnilegur á sínum yngri árum en er að finna fjöl sína að nýju. Hörður féll úr leik í umspili um sæti í Olís-deild karla gegn Víking á síðustu leiktíð. Það er ljóst að félagið ætlar ekki að endurtaka leikinn og markmiðið er Olís-deild karla haustið 2022.
Handbolti Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira