Skoðun

Kvenfyrirlitningin liggur víða í laumi

Erna Bjarnadóttir skrifar

Undanfarna daga hafa konum sem fóru í rannsóknir/skimun fyrir leghálskrabbameini fyrr á árinu, borist svör með niðurstöðum. Það á bæði við konur sem eru án einkenna um sjúkdóminn og þær sem þurfa frekari rannsóknir eða meðferð. En nú ber svo við að síðartaldi hópurinn átti alls ekki að fá þetta sem rafrænt bréf án aðgátar í nærveru sálar. Einvörðungu átti að senda út upplýsingar um eðlilegar niðurstöður. Þegar þetta er skrifað er ekki komin frétt um málið á heimasíðu Heilsugæslunnar þó ljóst megi vera að menn þar á bæ séu meðvitaðir um þetta fyrir nokkrum dögum síðan. Hvað varð um þessa þarfagreiningu sem forstjóri HH upplýsti að væri að hefjast í byrjun júní (nei það átti ekki að vera komma hérna). Fjöldi kvenna er skilinn eftir í óvissu og nánast uppnámi. Enginn talar við þær. Þær sem hafa átt samskipti við LSH vegna frekari rannsókna segja líka að þar sé engin forgangsröðun, allt meira og minna lokað vegna sumarleyfa og engar nýjar bókanir fyrr en í ágúst.

Hópurinn „Aðför að heilsu kvenna“ er nánast orðinn jafningafræðsla og sjálfshjálparhópur þeirra sem hafa rekist hér á risastóran vegg. Vegg sem ekki fara yfir faglegar upplýsingar til notenda þjónustunnar, vegg sem ábyrgðaraðilar fela sig á bak við, vegg sem virðist líka vera hljóðeinangraður og skellt er skollaeyrum við ákalli kvenna og aðstandenda þeirra um að þjónustan verði færð til nútíma horfs.

Hæstvirtur heilbrigðisráðherra, hvenær er nóg, nóg? Það ber fólk ábyrgð á þessu allsherjar klúðri. Sjúkdómar fara ekki í sumarleyfi, kvíði og áhyggjur ekki heldur. Þetta ástand kemur niður á hundruðum ef ekki þúsundum fjölskyldna. Hópurinn „Aðför að heilsu kvenna“ hefur haldið sig við að vera málefnalegur og benda á alvarlega stöðu, öryggi, gæði og mannvirðing eru okkar einkunnarorð. En stjórnvöld geta ekki einu sinni farið eftir þeirri gullnu reglu að „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“. Krafan er skýr, komið þessum málum í lag og sýnið notendum þjónustunnar lágmarks virðingu.

Höfundur er stofnandi Facebookhópsins „Aðför að heilsu kvenna“.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×