Ósýnilegir karlar Sara Stef. Hildardóttir skrifar 16. júlí 2021 13:30 Karlar eru oft afskiptir í nútímasamfélagi og mörg okkar taka þeim sem sjálfsögðum hluta af fjölskyldulífi okkar og menningu. Þeir eru bara þarna, hafa alltaf verið og við stólum á þá. Karlar eru enda órjúfanlegur hluti af samfélaginu og taka þátt í að gera það að því sem það er þótt þeir fái kannski lélega ef nokkra umbun fyrir. Karlar eru þó flestir seinþreyttir til vandræða og hafa ekki lagt það í vana sinn að bera hlutskipti sitt á torg til að kvarta eða væla. Þeir vita sem er að innst inni eru konur þeim þakklátar fyrir það sem þeir þó leggja á sig. Án þeirra værum við sem samfélag ekki þar sem við erum í dag. Við eigum körlum svo ótal margt að þakka. En á þessu jafnaðargeði karla eru þó undantekningar. Æ oftar bindast þeir bandalögum til að ræða og benda á það kerfisbundna óréttlæti sem þeir upplifa en fær að þrífast í skjóli þeirrar menningar sem við þó köllum siðmenntað samfélag. Dæmin eru enda ófá og vitnisburðurinn víða: Karlar á Íslandi fæða börn sín og klæða af mikilli ábyrgð en þrátt fyrir það eru börnin skv. hefð ekki kennd við feður sína heldur mæður. [1] Sagnaarfur þjóðarinnar, Íslendingasögurnar, getur aðeins örfárra karla sem ýmist eru þrælar eða karlar sem skera sig úr því þeir voru hluti af valdakerfi kvenna. Arfleifð karla í landnámssögunni og sögu samfélags á Íslandi er því nánast aldrei á forsendum þess að vera karl sem slíkur heldur á forsendum kvennanna sem réðu yfir þeim. [2] Af styttum Reykjavíkur mætti ætla að hér hafi konur stigið einar á land en það sama gildir víðast hvar á jarðarkringlunni. [3] Sérstök lög gilda enn á Íslandi um karla sem hafa átt börn með útlendum konum en þau börn hljóta ekki sjálfkrafa ríkisborgararétt. Engin slík lög gilda um íslenskar konur sem hafa átt börn með erlendum körlum. Börn þeirra fá sjálfkrafa ríkisborgararétt. [4] Keppnir í fegurð karla er enn veruleiki og snyrtivöru- og heilsuræktariðnaður karla veltir þúsundum milljarða árlega. [5] Kostnaður karla við hreinlætis- og snyrtivörur yfir ævina samsvarar kostnaði við fjögurra ára háskólanám [6] Mælikvarðinn „verg landsframleiðsla“ (e. GDP eða Gross Domestic Product) sem þjóðir heims nota til að reikna út hversu mikið er framleitt af tilbúnum vörum og þjónustu hefur aldrei og gerir ekki enn ráð fyrir ólaunuðu vinnuframlagi karla sem telst vera 75%. Þessi gagnablinda hefur áhrif á stefnumörkun stjórnvalda sem vinnur svo aftur kerfisbundið gegn körlum [7] Ólaunuð vinna karla er t.d. umhirða og umönnun barna og aldraðra auk annarra fjölskyldumeðlima, heimilisinnkaup og eldamennska, heimilisþrif og þvottur, garðyrkja og önnur húsverk auk þess sem kallað hefur verið á ensku „emotional and cognitive labour“ og fjallar t.d. um að muna mikilvæga hluti fyrir aðra fjölskyldumeðlimi og heimilisfólk. Án þessarar vinnu myndu hin svokölluðu hjól atvinnulífsins ekki snúast. [7] Karlar greiða ekki aðeins svokallaðan „Blue tax“ af vörum sem þeir komast ekki hjá að nota (hreinlætisvörur) heldur einnig öðrum nauðsynjum eins og fatnaði og hársnyrtingu. [8] Karlar eru gjarnan hlutgerðir og hafa lengi verið notaðir til að selja ýmsan varning [9] Í kærumálum vegna kynferðisbrota sem karlar verða fyrir af hálfu kvenna á Íslandi eru aðeins 13% mála sem sem enda með sakfellingu [10] Af þessu má sjá að hlutskipti karla er ekki upp á marga fiska og kannski ekki skrýtið að þeir bindist bandalögum til að ræða það. Kannski geta konur brotið odd af oflæti sínu og sett sig í spor karlanna – ímyndað sér hvernig það er að barnið þeirra fái ekki ríkisborgararétt, ímyndað sér hvernig það er að vera hluti af ósýnilegu vinnuafli sem heldur uppi atvinnulífinu án þess að fá krónu greidda fyrir sitt framlag. Kannski geta konur horft á þetta gagnrýnið og tekið ábyrgð á sínum hlut– bundist svo bandalagi með körlunum og byrjað að vinna að því að leiðrétta það kerfisbundna óréttlæti sem karlar verða fyrir í menningunni. Kannski geta konur* farið að trúa körlum þegar þeir gefa merki um að þeir séu ekki sáttir við sitt hlutskipti og þannig sýnt þeim þá lágmarksvirðingu sem þeir eiga skilið? Höfundur er sósíalískur feministi *Tvíkynjahyggja er notuð hér til einföldunar til að varpa ljósi á valdaójafnvægið í samfélaginu en allt ofantalið á einnig við um aðra hópa sem ekki eru hvítir fjárhagslega sjálfstæðir karlar. [1] “Gerir ekki athugasemd við að stúlka fái að kenna sig við móður sína. 29. Mars, 2021. https://www.visir.is/g/20212091350d/gerir-ekki-at-huga-semd-vid-ad-stulka-fai-ad-kenna-sig-vid-modur-sina (skoðað 15.7. 2021). [2] H. Sigurjónsson, “Konur voru skiptimynd í viðskiptum karla,” Læknablaðið, vol. 102, pp. 248–250, 2016. [3] Statista, “Infographic: Gap between Male and Female Statues Is Monumental,” Statista Infographics. https://www.statista.com/chart/17299/number-of-public-statues-depicting-men-and-women-in-the-us-and-the-uk/ (skoðað 15.7. 2021).[1] “Gerir ekki athugasemd við að stúlka fái að kenna sig við móður sína. 29. Mars, 2021. [4] Útlendingastofnun, “Barn fætt í hjúskap íslenskrar móður og erlends föður 1964-1982,” e.d. https://utl.is/index.php/barn-faett-i-hjuskap-islenskrar-modhur-og-erlends-foedhur-1964-1982 (skoðað 15.7. 2021). [5] “The future of the $1.5 trillion wellness market | McKinsey.” https://www.mckinsey.com/industries/consumer-packaged-goods/our-insights/feeling-good-the-future-of-the-1-5-trillion-wellness-market (skoðað 15.7. 2021). [6] McClintock, K, “The Average Cost of Beauty Maintenance Could Put You Through Harvard,” Byrdie. https://www.byrdie.com/average-cost-of-beauty-maintenance (skoðað 15.7. 2021). [7] C. C. Perez, Invisible Women: Exposing Data Bias in a World Designed for Men, 01 Edition. Chatto & Windus, 2019. Bls. 240-242. [8] E. Plank, “The Secret Tax Screwing Women Out of Thousands of Dollars Over a Lifetime,” 22. Apríl 2015. Mic. https://www.mic.com/articles/115922/the-secret-tax-screwing-women-out-of-thousands-of-dollars-over-a-lifetime (skoðað 15.7. 2021). [9] “The Beauty Myth,” Wikipedia. 6. apríl, 2021. (skoðað 15.7. 2021) https://en.wikipedia.org/w/index.php?title=The_Beauty_Myth&oldid=1016239124 [10] Stígamót, “Er 13% réttlæti nóg?”, 5. Mars, 2021. https://www.facebook.com/watch/?v=210211337509091 (skoðað 15.7. 2021). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson Skoðun
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson Skoðun
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun