
Jóndís Inga er 24 ára gömul kaffidrottning búsett í vesturbæ Reykjavíkur. Hún er fædd og uppalin í Skagafirðinum, sálfræðimenntuð og starfar í dag sem ljósmyndari.
Þegar ástin svíkur stendur kaffi alltaf með þér
Kaffi og kaffidrykkja á hug og hjarta Jóndísar sem nýverið gaf út sína fyrstu ljóðabók, Kaffiást.
„Þetta eru hugleiðingar mínar um kaffið, ástina og lífið og hvernig þetta fléttast allt saman. Í gegnum lífsins brekkur hefur kaffið alltaf verið til staðar, sama hvað. Þegar ástin svíkur, stendur kaffið alltaf með þér.“
- “til er mikið magn
- af meðferðum
- kaffið er mín”

Jóndís segist eiga í miklu ástar- og haturssambandi við stefnumótaforritið Tinder og dreymir hana um stefnumótamenningu í anda bandarísku þáttanna Sex and the City.
Ég er mjög hrifin af kaffihúsadeitum því það er mjög mikilvægt að sjá hvernig þeir vilja kaffið sitt og hvernig þeir drekka það.
Draumakærasti Jóndísar verður að skilja kaldhæðni, vera fyndinn og hugsa vel um andlega og líkamlega heilsu. Einnig segir Jóndís mikilvægt að hann elski kaffi jafn mikið og hún sjálf.
Er kaffið kannski stærsta ástin þín núna?
„Kaffið er jú minn tryggasti og traustasti lífsförunautur svo það verður erfitt fyrir einhvern að komast fram fyrir í röðinni, ég viðurkenni það. Ég tala jafn mikið um kaffið og vinkona mín talar um strákinn sem hún er skotin í. Segir líklega margt,” segir Jóndís og hlær.

Hér fyrir neðan segir Jóndís frá eiginleikum sem heilla og heilla ekki í viðtalsliðnum Boneorðin 10.
ON:
- Hreinskilni - Segðu mér það sem er satt, ekki það sem þú heldur að ég vilji heyra.
- Gleraugu - Ég er vandræðalegt heit fyrir kjút gleraugum.
- Kaldhæðni -Nauðsynlegt að geta skilið kaldhæðni, kostur að geta talað hana líka.
- Húmor - Ef hann fær mig ekki til að hlæja þá má hann finna útidyrahurðina.
- Kaffi
- “við hefðum getað orðið
- flott par
- en þú drekkur ekki kaffi”
OFF:
- Óheiðarleiki - Ekkert sem fer jafn mikið í taugarnar á mér og einhver sem getur ekki verið hreinskilinn, hvorki við sjálfan sig né aðra.
- Drekkur ekki kaffi - Bara ekki tala við mig ef þú drekkur ekki kaffi.
- Bara klár á bókina - Það er eitt að vera klár á bókina en annað að vera klár á lífið. Ég kýs þann sem er klár á lífið.
- Þolir illa áfengi en elskar að drekka - Ef áfengi fer illa í þig, þá er töluvert betra að sleppa því.
- Neysluhyggja - Að þurfa alltaf að eiga dýran bíl og nýjasta símann er mjög boring.

Fyrir þá sem vilja fylgjast frekar með Jóndísi er hægt að nálgast Instagram prófíl hennar hér.