Enginn greindist með Covid-19 um helgina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. júní 2021 10:52 Sýnatökuglös eins og notuð eru við skimun vegna kórónuveirunnar. Vísir/Vilhelm Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands föstudag, laugardag eða sunnudag. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.
Síðan er uppfærð þessi dægrin á mánudögum og fimmtudögum en þess á milli senda almannavarnir fjölmiðlum tilkynningar ef fólk greinist utan sóttkvíar. Mikið var um veisluhöld á laugardaginn vegna háskólaútskrifta auk afmæla og fleiri hátíðarstunda. Hafi einhverjir smitast um helgina á það ekki eftir að koma fram í tölunum fyrr en eftir einhverja daga. Í einangrun eru nú 15, en þeir voru 22 á fimmtudag. Í sóttkví er 41, en voru 57 á sunnudag. 1.544 eru í skimunarsóttkví. Einn er nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og var í síðustu viku. Fimm greindust á landamærum í gær, þar sem einn var með virkt smit í fyrri landamæraskimun, einn mældist með mótefni, en niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilfelli þriggja. 153.725 eru nú fullbólusettir hér á landi, 52,1 prósent íbúa sextán ára og eldri, og er bólusetning hafin hjá 85.089 til viðbótar, eða 28,8 prósent íbúa sextán ára og eldri. Þá hafa 2,2 prósent fengið Covid-19 og/eða eru með mótefni til staðar. 6.630 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru þrjátíu látin. Fréttin verður uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fleiri fréttir Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira