Hörður Axel tók bara 21 skot í leikjunum þremur en hann var aftur á móti með 33 stoðsendingar í leikjunum þremur eða 11 að meðaltali í leik.
Hörður var því með tólf fleiri stoðsendingar en skot í þessu einvígi.
Í þriðja leiknum í gær tók Hörður Axel aðeins fimm skot allan leikinn en gaf aftur á móti þrettán stoðsendingar sem er met hjá honum í úrslitakeppni á ferlinum.
Hörður Axel hitti bara úr einu skoti í leiknum og skoraði bara þrjú stig en hann hafði mikil áhrif á gang mála með leikstjórnun, stoðsendingum og varnarleik.
- Hörður Axel Vilhjálmsson í einvíginu á móti KR:
- Leikur eitt
- 8 skot og 8 stoðsendingar
- Leikur tvö
- 8 skot og 12 stoðsendingar
- Leikur þrjú
- 5 skot og 13 stoðsendingar
-
Samtals
-
21 skot og 33 stoðsendingar