Stjórnvöld og dómstólar leggja blessun sína yfir rangfærslur, ósannindi og afbökun á staðreyndum í skýrslum barnaverndar Sara Pálsdóttir skrifar 4. júní 2021 14:00 Barnaverndaryfirvöld eru stjórnvöld. Sem slík, bera þau ríka ábyrgð á því að fylgja meginreglum um hlutleysi og sannleika í öllu sínu starfi. Þegar barnaverndarnefndir reka mál gegn foreldrum fyrir dómi, t.d. til að svipta foreldri forsjá yfir barni eða til að taka barn af heimili með að vista það utan heimilis, byggja slík mál að miklu leyti á gögnum sem frá barnavernd starfa, frásögnum starfsmanna barnaverndar skrifa auk úrskurðum barnaverndarnefnda, sem aftur byggja á umræddum frásögnum. Þá afla barnaverndir einhliða forsjárhæfnimats og eru iðulega með sömu sálfræðingana sem vinna flest ef ekki öll slík mat fyrir barnavernd. Þessir sálfræðingar eru þá ráðnir af barnavernd og þiggja greiðslur frá þeim. Foreldrar sem sæta slíkum afskiptum af friðhelgi einkalífs þeirra og fjölskyldu, eiga rétt á styrk vegna greiðslu fyrir aðstoð lögmanns. Hversu hár slíkur styrkur er, er háð ákvörðun barnaverndar. Ekki er vel séð að lögmaður vinni of ötullega eða of mikið til verndar hagsmunum foreldris og fjölskyldu hans, slík vinna á að vera „hæfileg að mati barnaverndar“, annars er hún ekki greidd. Skýrslur barnaverndar og innihald þeirra hafa mikið og sterkt væri að lögum. Samkvæmt 71. gr. laga um meðferð einkamála skal það sem fram kemur í slíkum skýrslum teljast rétt og satt um atvik máls, þar til annað telst sannað. Þessar skýrslur skrifa starfsmenn barnaverndar um það sem þeir upplifa í störfum sínum og atvik mála. Í starfi mínu sem lögmaður hef ég því miður komist að því að það sem skráð er í þessar skýrslur er oft á tíðum rangt, villandi eða hrein og klár ósannindi. Þá virðist oft vera dregin upp, vísvitandi, sérstaklega neikvæð mynd af foreldri og því sleppt að fjalla um það sem er foreldrinu í hag. Jafnvel þótt bent sé á það, hjá barnavernd, barnaverndarnefnd, úrskurðarnefnd velferðarmála, lögreglu og dómstólum, og sýnt fram á hið rétta, er ómögulegt að fá þessar skýrslur leiðréttar. Það furðulega er, að ekkert þessara yfirvalda minnast á sjónarmið, málsástæður eða ábendingar undirritaðrar um þessar rangfærslur, ósannindi og afbökun á sannleikanum. Það er eins og það heyri enginn né sjái, eða vilji ekki sjá, þegar undirritaður lögmaður bendir á þetta. Foreldrið (og barnið) er því gersamlega réttlaust, þegar einstakir starfsmenn barnaverndar skrifa slíkar skýrslur, og svo eru skýrslurnar lagðar til grundvallar í dómi til að taka af börn af foreldrum. Svo neitar barnavernd að greiða lögmanni fyrir slíka vinnu, að rekja ósannindin. Alger óþarfi að vera að leiðrétta rangfærslur í opinberum skýrslum því það hlustar enginn á það hvort eð er. Undirrituð kærði ákvörðun barnaverndar um að lækka reikning við vinnu undirritaðrar til úrskurðarnefndar velferðarmála og byggði m.a. á því að það væri siðareglubrot að benda ekki á rangfærslur og ósannindi í skýrslum barnaverndar og fyrir slíka vinnu ætti að greiða. Að umfang vinnunnar hefði verið mun minna ef ekki hefði farið öll þessi vinna í að leiðrétta rangfærslur og villandi ummæli í skýrslum barnaverndar. Hlutverk lögmanns er m.a. að benda á hið sanna og rétta svo að ákvörðun verði tekin á réttum grunni. Fyrir þá vinnu vill barnavernd hins vegar ekki greiða. Rangfærslur og ósannindi voru svo rakin fyrir nefndinni. Í niðurstöðu nefndarinnar, sem staðfesti ákvörðun barnaverndar, var ekki minnst einu orði á þetta. Alveg sama afgreiðsla og hjá dómstólum og lögreglu. Yfirvöld horfa framhjá þessu vísvitandi og foreldri situr uppi með bæði rangar og villandi skýrslur hjá barnavernd, foreldrinu mjög í óhag. Og lögmenn fá þau skilaboð að það þýði ekkert að reyna að fá þetta leiðrétt, þú situr sjálfur uppi með kostnaðinn og enginn hlustar á þig. Starfsmaður barnaverndar virðist þannig geta skrifað hvað sem er um foreldra í skýrslur og það telst satt og rétt sjálfkrafa. Foreldrar hafa svo enga leið til að fá leiðrétt þar sem þar stendur, jafnvel þótt sýnt sé fram á að þar sé farið með rangt mál. Einn skjólstæðingur minn er orðinn svo brenndur af ósannindum og neikvæðum ummælum um sig í skýrslum barnaverndar að hann hefur ekki þorað öðru en að taka hverja umgengni við barn sitt upp á myndband til að eiga sönnun um það sem raunverulega fer fram. Viðbrögð barnaverndarnefndar við því voru þau að banna foreldrinu að taka upp myndband í umgengni vegna meintra brota gegn friðhelgi barnsins. Á sama tíma neitar barnaverndin að taka umgengni upp. Foreldrið er svo brotið vegna þessa að það þorir ekki að hitta barnið sitt í þau fáu skipti sem foreldrinu er það leyft (tvisvar á ári). Í öðru máli var svo ítrekað og alvarlega farið með rangt mál í skýrslum, úrskurðum og jafnvel stefnum sem stöfuðu frá barnavernd að undirrituð taldi sér skylt að kæra starfsmenn barnaverndar og nefndina sjálfa til lögreglu fyrir brot í opinberu starfi. Það hefur enn engan árangur borið líkt og ég hef þegar fjallað um. Ítrekað hef ég séð skýrslur frá barnavernd þar sem dregin er upp eins dökk og neikvæð mynd af foreldri og hægt er. Afar vafasömum ásökunum slengt fram án fullnægjandi sannana þar sem foreldrið er málað upp sem eitthvað skrímsli í augum dómstóla. Þannig virðist bara fjallað um það sem foreldrinu í óhag, en öllu því jákvæða sleppt. Hægt er að láta hvern sem er líta illa út með slíkri aðferðafræði. Þetta er ekki í samræmi við sannleika né hlutleysi. Hvað þá hitt þegar um hrein ósannindi er að ræða. Það virðast allir setja kíkinn yfir blinda augað og neita að horfast í augu við þetta og taka á þessu. Hvernig stendur á því að úrskurðarnefndin nefnir ekki þessi sjónarmið í úrskurði sínum þegar lögmaður bendir á? Er það eðlilegt að stjórnvöld neiti að taka á þessu og sendi þau skilaboð að lögmenn eigi ekki að láta sig slíkt varða með því að neita að greiða fyrir vinnu þeirra? Er eðlilegt að fyrir dómi leyfi dómari sér ítrekað að banna spurningar lögmanns, trufla hann og gagnrýna þegar reynt er að spyrja starsmann barnaverndar út í rangfærslur í skýrslum? Hversu alvarleg mannréttindabrot eru það að rangfæra opinber gögn og veita enga leið til leiðréttingar á slíku, og það í málum þar sem börn eru rifin af heimili sínu og frá fjölskyldu? Ég skora á barnamálaráðherra að láta fram fara opinbera rannsókn á vinnubrögðum barnaverndar og gefa skjólstæðingum barnaverndar kost á að koma umkvörtunum sínum sem lúta að slíkum vinnubrögðum á framfæri við þá rannsókn. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sara Pálsdóttir Barnavernd Mest lesið Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun