Mané hunsaði Klopp eftir leikinn gegn United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. maí 2021 08:01 Sadio Mané varð að gera sér að góðu á byrja á varamannabekknum gegn Manchester United. getty/Andrew Powell Athygli vakti að Sadio Mané tók ekki í spaðann á Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, eftir sigurinn á Manchester United í gær. Klopp gerði lítið úr atvikinu í viðtölum eftir leik.
Mané hefur ekki náð sér á strik að undanförnu og var ekki í byrjunarliði Liverpool í leiknum á Old Trafford í gær. Hann kom inn á sem varamaður þegar sextán mínútur voru eftir. Þegar Klopp ætlaði að fagna með Mané eftir leikinn hunsaði Senegalinn þýska stjórann og gekk til búningsherbergja. Þrátt fyrir það sagði Klopp engin vandræði vera milli sín og Manés. „Ég breytti hlutunum frekar seint á æfingu,“ sagði Klopp og vísaði til þess að hann ákvað að vera með Diogo Jota í byrjunarliðinu í stað Manés. „Drengirnir eru vanir því að ég skýri hlutina út fyrir þeim og ég gerði það ekki þarna. Enginn tími, ég gleymdi því eða hvað það var. Þetta er allt í góðu lagi.“ Greame Souness, sérfræðingur Sky Sports, las meira í atvikið en Klopp. „Þetta var vanvirðing. Ef ég væri stjórinn væri ég ekki ánægður. Hann ætti að sýna smá virðingu,“ sagði Souness. „Þetta er vanvirðing gagnvart stjóranum og félaginu. Hvernig getur hann mótmælt? Hann hefur ekki átt gott tímabil og Liverpool vann leikinn, 4-2.“ Liverpool er í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sextíu stig, fjórum stigum á eftir Chelsea sem er í 4. sætinu en á leik til góða. Í síðustu þremur leikjum sínum á tímabilinu mætir Liverpool West Brom, Burnley og Crystal Palace.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira