Ná Keflvíkingar að vinna öll hin ellefu liðin í einni halarófu? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2021 14:30 Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar geta unnið ellefta deildarsigur sinn í röð í kvöld. Vísir/Vilhelm Deildarmeistarar Keflavíkur taka í kvöld á móti Val í næstsíðustu umferð Domino´s deildar karla. Keflvíkingar hafa að litlu að keppa en sömu sögu er ekki hægt að segja um Valsmenn. Valur er í baráttunni um fjórða sætið og þar með heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. KR og Grindavík unnu bæði leiki sína í gær og Valsliðið datt því niður í sjötta sætið. Með sigri í kvöld komast Hlíðarendapiltar aftur upp í fjórða sætið. Valsmenn geta einnig „sópað“ deildarmeisturunum með sigri í kvöld því Valsliðið vann leik liðanna á Hlíðarenda í febrúar með þrettán stigum. Aðeins einu öðru liði hefur tekist að vinna Keflavík í vetur og það er Stjarnan. Þegar Stjörnumenn mættu Keflvíkingum aftur þá vann Keflavíkurliðið sannfærandi 19 stiga sigur. Hvort Keflvíkingar nái að hefna aftur ósigurs í fyrri umferðinni í kvöld verður að koma í ljós en heimamenn hljóta að vera staðráðnir að gera betur en í fyrri leiknum þegar liðið skoraði aðeins 72 stig hjá Valsmönnum. Það er lægsta skor Keflavíkurliðsins á tímabilinu. Keflvíkingar hafa unnið tíu leiki í röð í deildinni eða alla leiki síðan þeir mættu Valsmönnum síðast 12. febrúar. Vinni Keflvíkingar því í kvöld þá hafa þeir náð að vinna öll ellefu lið deildarinnar í einni röð. Valsmenn hafa verið á góðu skriði eins og Keflvíkingar og hafa unnið sjö af síðustu átta leikjum sínum. Eina tapið síðan 6. mars síðastliðinn kom í Þorlákshöfn í síðasta útileik en Þórsarar unnu þá nauman tveggja stiga sigur. Leikur Keflavíkur og Vals hefst klukkan 20.15 í kvöld en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Strax á eftir verður síðan Dominos Körfuboltakvöld á dagskránni á sömu stöð. Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland. Dominos-deild karla Keflavík ÍF Valur Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Valur er í baráttunni um fjórða sætið og þar með heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. KR og Grindavík unnu bæði leiki sína í gær og Valsliðið datt því niður í sjötta sætið. Með sigri í kvöld komast Hlíðarendapiltar aftur upp í fjórða sætið. Valsmenn geta einnig „sópað“ deildarmeisturunum með sigri í kvöld því Valsliðið vann leik liðanna á Hlíðarenda í febrúar með þrettán stigum. Aðeins einu öðru liði hefur tekist að vinna Keflavík í vetur og það er Stjarnan. Þegar Stjörnumenn mættu Keflvíkingum aftur þá vann Keflavíkurliðið sannfærandi 19 stiga sigur. Hvort Keflvíkingar nái að hefna aftur ósigurs í fyrri umferðinni í kvöld verður að koma í ljós en heimamenn hljóta að vera staðráðnir að gera betur en í fyrri leiknum þegar liðið skoraði aðeins 72 stig hjá Valsmönnum. Það er lægsta skor Keflavíkurliðsins á tímabilinu. Keflvíkingar hafa unnið tíu leiki í röð í deildinni eða alla leiki síðan þeir mættu Valsmönnum síðast 12. febrúar. Vinni Keflvíkingar því í kvöld þá hafa þeir náð að vinna öll ellefu lið deildarinnar í einni röð. Valsmenn hafa verið á góðu skriði eins og Keflvíkingar og hafa unnið sjö af síðustu átta leikjum sínum. Eina tapið síðan 6. mars síðastliðinn kom í Þorlákshöfn í síðasta útileik en Þórsarar unnu þá nauman tveggja stiga sigur. Leikur Keflavíkur og Vals hefst klukkan 20.15 í kvöld en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Strax á eftir verður síðan Dominos Körfuboltakvöld á dagskránni á sömu stöð. Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Dominos-deild karla Keflavík ÍF Valur Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti