Valskonur geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2021 13:01 Hallveig Jónsdóttir og félagar í Val verða deildarmeistarar með sigri í kvöld. Vísir/Vilhelm Valur getur orðið deildarmeistari í Domino´s deildinni í kvöld þegar Snæfellskonur koma í heimsókn á Hlíðarenda.
Valsliðið er með fjögurra stiga forystu á toppnum þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Keflavíkurkonur geta enn náð Val að stigum svo framarlega sem Valsliðið vinni ekki leik sinn í kvöld því Keflavík og Valur mætast í lokaumferðinni. Það eru miklar líkur á Valssigri en Valskonur hafa unnið fimm síðustu leiki sína í deildinni og alla níu heimaleiki sína á tímabilinu. Snæfellskonur hafa bitið frá sér í síðustu tveimur leikjum en með því að vinna KR og Skallagrím þá tryggðu þær sér áframhaldandi sæti í deildinni. Valskonur hafa unnið deildarmeistaratitilinn undanfarin tvö tímabil og eru ríkjandi Íslandsmeistarar frá vorinu 2019. Í fyrravetur var úrslitakeppninni frestað vegna kórónuveirunnar og enginn Íslandsmeistari krýndur. Leikur Vals og Snæfells hefst klukkan 20.15 í Origo-höllinni að Hlíðarenda. Það geta farið fleiri bikarar á loft hjá KKÍ í kvöld. Leikmenn Njarðvíkur í 1. deild kvenna geta líka tryggt sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í kvöld þegar þær fá Grindavík í heimsókn í Njarðtaks-gryfjuna klukkan 19.15. Leikdagur - deildarmeistaratitill í boði! Miðasala á Stubb - ársmiðahafar sendið póst á teddi@valur.is fyrir kl. 15 með nafni, kt. símanúmeri og númeri áramiða.Posted by Valur Körfubolti on Þriðjudagur, 4. maí 2021
Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn