„Ég hef séð Loga setja þetta skot ansi oft“ Atli Arason skrifar 26. apríl 2021 22:02 Sigurður Gunnar var öflugur í kvöld, sem fyrr. vísir/vilhelm Sigurði Gunnari Þorsteinssyni var ansi létt þegar hann kom í viðtal í leikslok eftir æsispennandi lokamínútu í leik Njarðvíkur og Hattar í kvöld. Logi Gunnarsson fékk tækifæri til að vinna leikinn fyrir Njarðvík þegar 2,7 sekúndur voru eftir en þriggja stiga tilraun hans fór ekki niður. „
Ég er bara rosalega feginn. Ég hef séð Loga setja þetta skot ansi oft og hann fékk það galopið. Ég er bara svolítið feginn að hann klikkaði,“ sagði Sigurður en hann vildi meina að öflugur varnarleikur Hattar væri ástæðan fyrir sigri þeirra í kvöld. „Við höldum þeim í 72 stigum á heimavelli þannig að vörnin skilaði sigrinum.“ Hefði Njarðvík unnið þennan leik þá væri staða Hattar á botninum ansi svört. Þess í stað er Höttur komið í 11. sæti deildarinnar, einungis tveimur stigum á eftir Njarðvík ásamt því að eiga betri innbyrðis viðureignir gegn Njarðvík á tímabilinu. Sigurður er alls ekki á þeim buxunum að vera að velta sér eitthvað upp úr stöðunni eins og hún er akkurat núna. „Við getum ekki verið að spá eitthvað í töflunni. Við vorum bara að hugsa um þennan leik og að vinna hann. Núna förum við inn í klefa, þvoum okkur og hugsum um næsta leik. Það er bara svona úrslitakeppnis eða bikarkeppnis hugarástand hjá okkur. Við getum ekki verið að spá í því að horfa á einhverja töflu, við verðum bara að vinna leiki.“ Sigurður hefur spilað samfellt í efstu deild á Íslandi u.þ.b. 15 ár og hann hefur engan áhuga á því að falla úr deildinni núna. „Ég held að ég hafi fallið með KFÍ þegar ég var 16 eða 17 ára en ég ætla alls ekki að gera það aftur. Ég ætla bara að vinna næsta leik,“ bætti Sigurður við, harðákveðinn. Næsti leikur Hattar er gegn Þór á Akureyri þar sem Höttur verður að sækja stig. „Við verðum bara að halda áfram að gera það sem við erum að gera vel. Ef við spilum góða vörn þá koma sigrarnir,“ sagði Sigurður Gunnar Þorsteinsson að lokum
UMF Njarðvík Höttur Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira