Ingó, Doctor Victor og Gummi Tóta með annað sumarlag Stefán Árni Pálsson skrifar 23. apríl 2021 13:30 Ingó, Doctor Victor og Gummi Tóta með sumarlag. Tónlistarmaðurinn og læknirinn Victor Guðmundsson, betur þekktur sem Doctor Victor, gaf í dag út lagið Gírinn ásamt bræðrunum Ingó Veðurguð og Gumma Tóta, en það er annað lagið sem þeir félagar gefa út saman.
Fyrra lagið þeirra Sumargleðin sló í gegn árið 2019 og var sumarsmellur ársins. „Gírinn er lag til að gíra íslensku þjóðina í gang,“ segir Victor. Lagið samdi hann ásamt vini sínum Elvari Páli Sigurðssyni fyrir þó nokkru síðan en það varð til þegar hann var að koma sér upp stúdíói heima á Íslandi eftir langt læknanám erlendis. Elvar Páll samdi lagið ásamt Victori. Victor segir að lagið Gírinn hafi verið gert bara upp á gamnið til að byrja með en svo hafi fleiri og fleiri heyrt demó útgáfuna, m.a. Ingó og Gummi, og þeir hafi ákveðið að keyra á þetta og gefa út lagið. „Ég var búinn að gera drög að gíruðum texta með Elvari Páli vini mínum og áður en ég vissi af vorum við bara mættir með bræðrunum í stúdíóið að vinna í þessu lagi. Síðustu mánuðir hafa náttúrulega verið erfiðir þannig að okkur langaði að gera lag til að gíra fólk í gang núna þegar útlitið er að verða bjartara,“ segir Victor. Victor gerði nýlega samning við útgáfufyrirtækið Sony Music, en fyrr á þessu ári gaf Victor út lagið Older með fyrrverandi landsliðsmanninum Rúrik Gíslasyni og fyrir tveimur vikum gáfu þeir út rólegri útgáfu af laginu sem þeir tóku upp í Eldborg í Hörpu. Framundan hjá Victor er fullt af meiri tónlist, en Gírinn er það nýjasta úr hans smiðju og fannst honum tilvalið að gera annað lag með bræðrunum eftir velgengni Sumargleðinnar. „Nú er sumarið komið og bjartari tímar framundan, þannig okkur fannst fullkomið að gefa út eitt hresst lag til að gíra fólk í gang.“ Lagið Gírinn má finna á Spotify og öllum öðrum helstu streymisveitum.
Tónlist Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Sjá meira