Söknuðu fjölskyldumatartímans á Spáni og opnuðu veitingaþjónustu Barceloneta 13. apríl 2021 14:02 Efst til vinstri Zoe Sarsanedas, Elma Backman, Pedro Lopez, Ágúst Breki (sonur Elmu og Alberts). Neðri röð frá hægri: Dagur Pétursson Pinós, Albert Muñoz. Tvær fjölskyldur og spænskur kokkur kynna spænska matarmenningu fyrir sólþyrstum Íslendingum. „
Spánverjar kunna að njóta matarins og gefa sér tíma til þess. Þar kemur fjölskyldan saman og eldar í sameiningu. Svo borða allir upp úr risastórri pönnu á miðju borði með skeið og tala stanslaust um matinn á meðan. Okkur langaði til þess að færa þessa spænsku tilfinningu og fjölskyldumenningu hingað og fannst sárlega vanta ekta paellu og tapas veitingastað í Reykjavík,“ segir Elma Backman, ein fimm eigenda veitingaþjónustunnar Barceloneta. Sjóðheit paellupannan fer á mitt borð og svo sameinast fjölskyldan við borðið. Tvenn hjón standa að fyrirtækinu, hálfíslensk og hálfspænsk og svo kokkurinn og paellumeistarinn Pedro Lopez sem töfrar fram réttina. Elma er íslensk og maðurinn hennar Albert Muñoz er frá Barcelona, Dagur Pétursson Pinós er hálf spænskur og hálfíslenskur en fæddur og uppalinn í Bercelona og Zoe Sarsanedas, konan hans er spænsk. Öll hafa þau mikla tengingu við mat en bæði Albert og Dagur hafa starfað á veitingastöðum í Barcelona frá því þeir voru krakkar. Albert ólst upp í verslun ömmu sinnar sem seldi meðal annars íslenskan saltfisk og Dagur fylgdist með sinni ömmu elda í vinnunni. „Amma mín var kokkur í skólanum sem ég var í sem barn svo það má segja að ég hafi alist upp í eldhúsinu hjá henni. Ég kom síðan fyrst hingað til Íslands í sumarvinnu sem uppvaskari á veitingastað og fljótlega kviknaði áhuginn á að læra að elda,“ segir Dagur. Mæta með sjóðheita paellu heim að dyrum „Við ætluðum okkur fyrst að opna veitingastað síðasta sumar en covid setti strik í reikninginn. Við snerum okkur þá að heimsendingu og viðtökurnar hafa sannarlega farið fram úr björtustu vonum. Við sendumst með tapas og paellur um allan bæ. Við komum með paelluna heim til fólks í sjóðheitri pönnunni og skiljum eftir. Það er svo mikil stemming að borða beint af pönnunni eins og Spánverjar gera og við viljum að fólk upplifi það. Við sækjum svo bara pönnuna daginn eftir. Það hefur líka verið mjög vinsælt að fá Pedro heim til að elda því það er svo gaman að sjá hvernig þetta er gert,“ segir Elma og Dagur fullyrðir að enginn verði svikinn af kokkatöktum Pedros. Pedro hefur eldað paellur í 25 ár og veit hvað hann syngur. „Pedro er algjör paellu-snillingur. Hann átti veitingastað í Alicante í 25 ár áður en hann flutti hingað til Íslands fyrir fimm árum. Það er stórkostleg upplifun að fylgjast með honum elda. Hann elskar að tala og segja frá matnum og talar mjög hratt. Hann lætur það ekki stoppa sig að hann talar hvorki ensku né íslensku og útskýrir allt vel og rækilega þó enginn skilji neitt,“ segja þau hlæjandi. „Íslendingar eru sannarlega til í suðræn ævintýri og þetta er eitthvað sem ekki hefur verið boðið upp á áður í Reykjavík. Það kemur alveg í staðinn fyrir grillveislu úti í garði að fá Pedro til að elda Paellu. Hann notar eingöngu fyrsta flokks hráefni og við flytjum meðal annars hráefnin inn frá Spáni. Við söknuðum matarins hreinlega svo mikið og ákváðum því að búa hann til sjálf. Við erum afar stolt af Barceloneta. Við erum eins og ein stór fjölskylda og viljum bjóða upp á einstaka stemmingu,“ segir Elma.
Matur Veitingastaðir Mest lesið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Lífið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Fleiri fréttir Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sjá meira