Takmarkanir á frelsi borgaranna í þágu lýðheilsu - nýr dómur yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu Halldóra Þorsteinsdóttir skrifar 11. apríl 2021 10:01 Þann 8. apríl sl. kvað yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu upp dóm þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að það færi ekki í bága við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu að skylda foreldra til að láta bólusetja börnin sín áður en þau fara í leikskóla. Þetta er fyrsti dómur dómstólsins sinnar tegundar og fordæmisgildi hans mikið þegar kemur að þeirri grundvallarspurningu við hvaða aðstæður er heimilt að takmarka frelsi borgaranna í þágu lýðheilsu. Umrætt mál barst Mannréttindadómstólnum árið 2015 og vakti það töluverða athygli í Evrópu þar sem fjöldi ríkja hefur gripið til þess ráðs að skylda foreldra til bólusetningar barna sem viðbrögð við því að sífellt fleiri sniðganga bólusetningar. Engan óraði þó fyrir því að nokkrum árum síðar stæði heimurinn frammi fyrir viðlíka ógn og kórónuveirufaraldrinum og að tékkneska málið kynni að hafa mun víðtækara fordæmisgildi en talið var í upphafi. Í málinu reyndi meðal annars á það hvort sektir, sem tékkneska ríkið lagði á foreldra sem ekki sinntu bólusetningarskyldu barna, og útilokun óbólusettra barna frá leikskólaplássi af sömu ástæðum fæli í sér brot gegn 8. gr. Mannréttindasáttmálans um friðhelgi einkalífs. Dómstóllinn sló föstu að enginn vafi væri á því að bólusetningarskylda fæli í sér verulegt inngrip í sjálfsákvörðunarrétt einstaklinga og réttinn til friðhelgi einkalífs. Ljóst væri hins vegar að slíkt frelsi mætti takmarka að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum: að um takmarkanirnar væri mælt í lögum, að takmarkanirnar stefndu að lögmætu markmiði (svo sem heilsuvernd almennings) og að þær væru nauðsynlegar til þess að ná umræddu markmiði. Yfirdeildin komst að þeirri niðurstöðu með sextán atkvæðum gegn einu að skerðing umræddra réttinda væri réttlætanleg með hliðsjón af því lögmæta markmiði að vernda heilsu almennings og einkum viðkvæmustu hópanna. Í þeim efnum leit dómstóllinn m.a. til þess að þótt skyldubólusetning væri vissulega viðkvæmt mál væri hún skilvirkasta úrræðið til þess að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdóma og tryggja hjarðónæmi. Þá yrði að meta umræddar aðgerðir út frá heildarhagsmunum samfélagsins en ekki sjónarhorni þeirra sem væru andvígir skyldunni. Loks yrði að játa tékkneska ríkinu svigrúm við mat á því hvaða leiðir væru farnar til þess að ná þeim markmiðum sem að var stefnt til verndar heilsu almennings. Dómar Mannréttindadómstólsins hafa almennt töluvert vægi við túlkun á sambærilegum íslenskum mannréttindareglum. Þau sjónarmið sem finna má í framangreindum dómi gætu þannig haft áhrif á hagsmunamat íslenskra dómstóla þegar kemur að því að vega og meta réttindi einstaklinga gagnvart heildarhagsmunum samfélagsins. Skilyrði sem stjórnarskráin setur inngripi í friðhelgi og frelsi fólks Í íslensku stjórnarskránni er víða kveðið á um frelsi borgaranna til athafna og friðar um persónulega hagi. Þannig er t.d. kveðið á um það í 1. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar að engan megi svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum og í 4. mgr. 66. gr. er fjallað um rétt þeirra sem dvelja hér löglega að vera frjálsir ferða sinna. Þá er í 71. gr. fjallað um að allir skuli njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Þessu frelsi má hins vegar setja skorður ef mælt er fyrir um takmörkunina í lögum, ef takmörkunin stefnir að lögmætum markmiðum og ef hún er nauðsynleg í lýðræðissamfélagi. Leikur enginn vafi á því að almannahagsmunir tengdir lýðheilsu eru meðal þeirra atriða sem talist geta til réttlætanlegra markmiða í þessum skilningi. Í tengslum við viðbrögð stjórnvalda við kórónuveirufaraldrinum ber alloft á góma hvort og þá hvaða heimildir ríkið hefur til inngrips í stjórnarskrárvarið frelsi einstaklinga. Í þeim efnum er ljóst að allar takmarkanir verður að máta við fyrrgreind skilyrði. Þannig var það til dæmis niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í liðinni viku að skilyrðinu um að lög mæltu fyrir um takmörkun væri ekki fullnægt varðandi skyldu einstaklinga til þess að dvelja á sóttkvíarhóteli. Hér má þó geta þess að í úrskurðinum var tekið fram að stjórnvöld hefðu haft ,,brýnt tilefni til að grípa til sóttvarnaráðstafana og hafa það enn“. Er þannig ekki útilokað að niðurstaðan hefði orðið önnur ef fullnægjandi lagastoð fyrir aðgerðinni hefði verið til staðar. Af dómi Mannréttindadómstólsins í fyrrgreindu máli leiðir að langt má ganga í að takmarka frelsi einstaklinga í þágu almannahagsmuna og lýðheilsu. Segja má með nokkurri einföldun að þar gildi meginreglan um að fórna megi minni hagsmunum fyrir meiri. Grundvallaratriðið er þó alltaf að aðgerðir fullnægi þeim lágmarksskilyrðum sem mælt er fyrir um í stjórnarskrá, meðal annars eins og hún er túlkuð til samræmis við Mannréttindasáttmála Evrópu. Sé skilyrðunum mætt má síðan af dómi Mannréttindadómstólsins ráða að hann játar ríkjunum ríkt svigrúm til þess að meta hvaða leiðir eru farnar til þess að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Höfundur er héraðsdómari og lektor við lagadeild HR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mannréttindadómstóll Evrópu Halldóra Þorsteinsdóttir Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar