Kane hefur verið á mála hjá uppeldisfélagi sínu , Tottenham, allan sinn feril og stimplað sig inn sem einn af bestu framherjum heims eftir að hafa verið lánsmaður í neðri deildum Englands fyrstu ár ferils síns.
Kane verður 28 ára í sumar og þrátt fyrir að hann hafi raðað inn mörkum fyrir Tottenham undanfarin ár hefur félagið ekki unnið neina keppni með Kane innanborðs.
The Athletic segir frá því í dag að Kane hafi gert upp hug sinn varðandi framtíð sína og að hann muni óska eftir sölu frá Tottenham, takist liðinu ekki að vinna sér keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Til þess þarf Tottenham að hafna í einu af fjórum efstu sætum ensku úrvalsdeildarinnar en liðið situr nú í 6.sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir West Ham sem er í 4.sæti sem stendur.
Stefnir í harða keppni milli Liverpool, Chelsea, Tottenham og West Ham um fjórða sætið dýrmæta.
Harry Kane wants to leave #THFC - but can he?
— The Athletic UK (@TheAthleticUK) April 10, 2021
Will push for a move if #THFC miss out on #UCL
#MCFC & #MUFC see him as a Haaland alternative
#THFC value him at more than £120m
Still has three years on contract
@OliverKay & @JackPittBrooke https://t.co/n91leV3CUy
Ljóst er að Kane mun kosta skildinginn því hann er samningsbundinn Tottenham til ársins 2024 en öll stærstu lið Evrópu eru sögð fylgjast grannt með gangi mála hjá Kane og er talið að Man Utd, Man City, Chelsea og Real Madrid séu tilbúin að legga allt í sölurnar við að klófesta Kane.