Framlög til loftslagsmála lækka þrátt fyrir auka milljarð Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2021 09:01 Framlög til loftslagsmála voru hækkuð umtalsvert í upphafi kjörtímabils ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að þau lækki töluvert aftur frá því sem nú er um miðjan þennan áratug. Vísir/Vilhelm Gert er ráð fyrir að framlög til loftslagsmála verði hátt í fjórum milljörðum krónum lægri árið 2026 en þau eru í ár í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Stjórnarandstöðuþingmaður segir áætlunina „plástur“ rétt fyrir kosningar.
Ríkisstjórnin kynnti fjármálaáætlun fyrir tímabilið 2022 til 2026 á mánudag. Í tilkynningu sem stjórnarráðið sendi frá sér í gærmorgun var lögð áhersla á að framlög til loftslagsmála verði aukin um einn milljarð á ári frá fyrri áætlun næsta áratuginn. Þessu sé ætlað að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Framlögin til málaflokksins á næsta ári, upp á rúma þrettán milljarða króna, verði þau mestu sem nokkru sinni hafi runnið til loftslagsmála á Íslandi. Fjárlagafrumvarp næsta árs verður þó ekki lagt fram fyrr en á haustþingi en kosið verður til Alþingis 25. september. Óvíst er því hvort að ný ríkisstjórn haldi sig við þessi áform, dragi úr þeim eða auki þau. Milljarðurinn breytir ekki samdrættinum Í tilkynningu ríkisstjórnarinnar sjálfrar má einnig sjá að til stendur að draga úr framlögum til loftslagsmála frá því sem nú er. Í ár og í fyrra voru lagðir rúmir tólf milljarðar í málaflokkinn. Verði farið eftir nýju fjármálaáætluninni aukast framlögin í þrettán milljarða á næsta ári og verða litlu minna en það árið 2023. Skorið verður niður til loftslagsmála um þrjá milljarða króna miðað við framlögin í ár frá og með árinu 2024. Tveimur árum síðar verða framlögin tæpum fjórum milljörðum lægri en þau eru í ár. „Framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar er að draga úr fjárframlögum til loftslagsaðgerða,“ segir Árni Finnsson, framkvæmdastjóri Náttúruverndarsamtaka Íslands og fulltrúi í loftslagsráði ríkisstjórnarinnar. Árlega milljarðarinnspýtingin sem ríkisstjórnin slær nú upp breyti því ekki að heildarfjárframlög til loftslagsmála dragist saman á næstu árum. Dregið úr skattalegum ívilnunum Samdrátturinn í framlögum til loftslagsmála skýrist nær alfarið af minni skattalegum ívilnunum. Þær nema nú 5,8 milljörðum króna en eiga að dragast saman ár frá ári til 2026. Þá eiga þær að nema um 1,2 milljörðum króna. Í fjármálaáætluninni segir að þetta gerist þegar núgildandi reglur falla úr gildi. Á meðal loftslagsaðgerða ríkisstjórnarinnar eru skattaívilnanir vegna umhverfisvænna og sjálfbærra fjárfestinga sem fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um á Alþingi. Íslensk stjórnvöld hafa einnig boðið ívilnanir til að örva sölu á rafbílum um árabil. Árni segir að vissulega kunni þörf á skattalegum ívilnunum að minnka með tímanum en þá megi nota fjármunina sem fóru í þær til að fjármagna aðrar loftslagsaðgerðir. Hann bendir á að af þeim viðbótarmilljarði sem ríkisstjórnin vill leggja í loftslagsaðgerðir fari rúmur hálfur milljarður í aukinn stuðning við orkuskipti árið 2022 og 450 milljónir króna bæði árið 2023 og 2024. Eftir það fari skerfur orkuskipta í viðbótarframlaginu niður í 200 milljónir króna. Nær óhugsandi sé þó að orkuskiptum verði lokið fyrir árið 2026. Árni Finnsson, framkvæmdastjóri Náttúruverndarsamtaka Íslands.Vísir/Vilhelm „Plástur“ rétt fyrir kosningar Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, setur spurningarmerki við framsetningu ríkisstjórnarinnar á framlögum til loftslagsmála í fjármálaáætluninni. Með því að sópa saman auknum framlögum næstu tíu árin þrátt fyrir að áætlunin nái aðeins til fimm ára séu hlutirnir látnir líta út fyrir að vera stærri en þeir raunverulega eru. „Umfram þetta er engin metnaðarfull framtíðarsýn sett fram sem endurspeglast í því að eftir því sem líður á gildistíma fjármálaáætlunar þá lækka framlögin til loftslagsmála. Þetta er engan veginn heildarsýnin sem þarf í þessum málaflokki heldur einhvers konar plástur sem er settur á rétt fyrir kosningar til þess að geta sagst hafa gert eitthvað,“ segir Andrés Ingi. Framlögin til loftslagsmála í áætluninni telur Andrés Ingi ekki einu sinni metnaðarfull sem kosningaútspil. Af þeim fjórum meginflokkum aðgerða sem viðbótarmilljarðurinn á að fjármagna bendir hann á að tveir telji að líkindum ekki upp í skuldbindingar Íslands gagnvart Parísarsamkomulaginu: landgræðsla og skógrækt annars vegar og endurheimt votlendis hins vegar. „Það er gott og vel en það rímar ekki við það að þetta sé sett fram til þess að endurspegla aukinn metnað stjórnvalda gagnvart Parísarsáttmálanum,“ segir þingmaðurinn. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, í þingsal.Vísir/Vilhelm
Loftslagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingiskosningar 2021 Stjórnsýsla Tengdar fréttir Um helmingi meiri koltvísýringur í lofti en fyrir iðnbyltinguna Styrkur koltvísýrings í lofthjúpi jarðar var um helmingi meiri en áður en iðnbyltingin hófst í nokkra daga á fyrstu mánuðum þessa árs. Búist er við því að árið 2021 verði það fyrsta þar sem styrkurinn verður svo hár í meira en nokkra daga. 17. mars 2021 11:01 Mest lesið Trump segir Hamas og Ísraela hafa náð samkomulagi Erlent Skýr afstaða landsmanna um hvort einkunnir eigi að vera í tölum eða bókstöfum Innlent Segir lægri álagningu á húsnæði en í öðrum greinum Fréttir „Ég ætla ekki að jarða hann, ég ætla að hafa hann á lífi“ Innlent „Auðvitað er ég hrædd um hana“ Innlent Varnargarðar hækkaðir við Grindavík Innlent Kenna Evrópu- og Bandaríkjamönnum um litlar líkur á friði Erlent Handtekinn fyrir að kveikja skæðasta eld Los Angeles Erlent Hitnar undir feldi Lilju Innlent Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum Innlent Fleiri fréttir Varnargarðar hækkaðir við Grindavík Skýr afstaða landsmanna um hvort einkunnir eigi að vera í tölum eða bókstöfum „Auðvitað er ég hrædd um hana“ Ford vörubíll árgerð 1930 gefinn Byggðasafni Árnesinga „Ég ætla ekki að jarða hann, ég ætla að hafa hann á lífi“ Mamma Möggu Stínu gerir upp erfiðan dag Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Hitnar undir feldi Lilju Játaði að hafa stolið tugum milljóna úr dánarbúi móður sinnar Játaði áralangt kynferðisofbeldi gegn stjúpdóttur sinni Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Fékk aðsvif og missti bílinn yfir á annan vegarhelming Hefur áhyggjur af unga fólkinu Ungir Sjálfstæðismenn vilja stöðva hælisveitingar Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Hafa rætt við ísraelsk stjórnvöld og sett fram kröfur vegna Margrétar Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum „Minnir á saltveðrið mikla“ Magga Stína tekin höndum og gular viðvaranir í kortunum Stúlkan komin í leitirnar Bændum verulega brugðið vegna breytinga á búvörulögum Ákærður fyrir stunguárás á Seltjarnarnesi Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Átján sagt upp í Seljahlíð Fyrri degi heimsóknar lauk með kvöldverði í forsetahöllinni Sást blóðugur fyrir utan fjölbýlishús Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka Sjá meira
Um helmingi meiri koltvísýringur í lofti en fyrir iðnbyltinguna Styrkur koltvísýrings í lofthjúpi jarðar var um helmingi meiri en áður en iðnbyltingin hófst í nokkra daga á fyrstu mánuðum þessa árs. Búist er við því að árið 2021 verði það fyrsta þar sem styrkurinn verður svo hár í meira en nokkra daga. 17. mars 2021 11:01