Innlent

Vonast til að leysa deilur um upp­byggingu fjöl­býlis­húsa með í­búa­kosningu

Eiður Þór Árnason skrifar
Málið hefur lengi verið hitamál á Akureyri.
Málið hefur lengi verið hitamál á Akureyri. Vísir/vilhelm

Íbúakosning mun fara fram í lok maí um tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Oddeyri á Akureyri. Var þetta samþykkt á fundi bæjarstjórnar í dag. Aðalskipulag svæðisins hefur reynst umdeilt í nokkurn tíma en sumir íbúar hafa gagnrýnt hugmyndir um byggingu hárra fjölbýlishúsa innan um lágreista byggð niðri við bryggjuna á Akureyri.

Akureyri.net greinir frá samþykktinni en fyrirhuguð íbúakosningu á að fara fram með rafrænum hætti í svokallaðri íbúagátt Akureyrarbæjar. Málið hófst árið 2019 þegar SS Byggir kynnti hugmyndir um allt að ellefu hæða fjölbýlishús á svæðinu.

Reiturinn sem um ræðir er afmarkaður með rauðu. Gránufélagshúsið, stóra svarta húsið, er friðað og mun áfram vera á sínum stað, hvort sem hugmyndir að uppbyggingu á svæðinu ná fram að ganga eða ekki.Mynd/Akureyrarbær

Skiptar skoðanir voru um fyrirætlanir verktakafyrirtækisins og eftir töluverða umræðu í samfélaginu um ágæti þeirra, sem og athugasemdir ýmissa hagsmunaaðila, afréð skipulagsráð að rétt væri að lækka hámarkshæð þeirra bygginga miðað við þær hugmyndir að uppbyggingu sem lagðar höfðu verið fram. Var þá lagt til að hámarkshæð bygginga yrði sex til átta hæðir.

Um er að ræða reit sem afmarkast af Hjalteyrargötu í vestri, Kaldbaksgötu í austri, Gránufélagsgötu í norðri og Strandgötu í suðri. Reiturinn er skammt frá Eimskipabryggjunni svokölluðu þar sem skemmtiferðaskip leggja gjarnan að, og skammt frá miðbæ Akureyrar.

Geti verið að hámarki sex hæðir

Bæjarstjórn samþykkti í dag tillögu skipulagsráðs að breyttu aðalskipulagi fyrir svæðið en þar er meðal annars reynt að koma til móts við hluta þeirra athugasemda og umsagna sem bárust.

Fram kemur á Akureyri.net að með breytingunum lækki hámarkshæð húsa úr 25 metrum yfir sjávarmáli í 20 metra sem feli í sér að hæstu húsin geti verið fimm til sex hæðir að hámarki. Jafnframt séu sett inn ákvæði um að hús syðst á reitnum megi að hámarki vera fjórar hæðir.

Bæjarstjóra hefur verið falið að vinna áfram að málinu í samráði við bæjarráð og er gert ráð fyrir að hugmyndir um fyrirkomulag íbúakosningarinnar komi aftur til afgreiðslu í bæjarstjórn.


Tengdar fréttir

Fullt út úr dyrum á í­búa­fundi um upp­byggingu á Odd­eyrinni

Akureyringar, og þá sérstaklega íbúar á Oddeyrinni, fjölmenntu á íbúafund þar sem kynntar voru nánar hugmyndir að uppbyggingu nokkurra fjölbýlishúsa á afmörkuðum reit á Oddeyrinni. Fullt var út úr dyrum á fundinum í kvöld í menningarhúsinu Hofi.

Svona líta hugmyndir að uppbyggingunni á Oddeyrinni út

"Svona verkefni í bæ eins og Akureyri. Við þurfum að vinna það í sátt við samfélagið,“ segir Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi, um hugmyndir félagsins að byggja allt að ellefu hæða fjölbýlishúsa á Oddeyrinni á Akureyri.

Vilja byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á Oddeyrinni

Bæjarstórn Akureyrar hefur samþykkt fyrsta skrefið í vinnu sem miðar að því að breyta deiliskipulagi Akureyrar svo heimilt verði að byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á reit á Oddeyrinni. Tillögurnar sem liggja til grundvallar verða kynntar fljótlega á íbúafundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×