Aubameyang kom síðastur og fór fyrstur eftir leikinn gegn Tottenham Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2021 13:01 Pierre-Emerick Aubameyang sat allan tímann á varamannabekk Arsenal gegn Tottenham. getty/Charlotte Wilson Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, kom ekkert við sögu í sigrinum á Tottenham í gær, 2-1, þar sem hann mætti of seint til leiks. Gabon-maðurinn fór hins vegar fyrstur frá Emirates eftir leikinn.
Aubameyang átti að vera í byrjunarliði Arsenal en Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins, setti hann á bekkinn eftir að hann mætti of seint á fund fyrir leikinn. Hann sat allan tímann á bekknum. Aubameyang var hins vegar á hraðferð eftir leikinn. Hann fagnaði ekki með liðsfélögunum sínum, skokkaði sig ekki niður með hinum ónotuðu varamönnunum og var farinn frá Emirates 23 mínútum eftir leikinn. Arteta vildi lítið ræða um Aubameyang eftir leik. „Við drögum línuna hér. Höldum núna áfram. Við vitum hversu mikilvægur Auba er fyrir okkur, fyrir félagið. Við höfum tekist á við þetta og höldum bara áfram.“ Aubameyang á von á sekt fyrir að mæta of seint til leiks í gær. Þetta ku ekki vera í fyrsta sinn sem hann mætir ekki tímanlega á fund fyrir leik. Aubameyang hefur skorað fjórtán mörk í 29 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Enski boltinn Tengdar fréttir Ósáttur með fyrri hálfleiks frammistöðu sinna manna og spurði hvort dómararnir kæmu ekki í viðtöl eftir leik José Mourinho, þjálfari Tottenham Hotspur, var ekki alveg sammála dómara Norður-Lundúnaslagsins. Alexandre Lacazette skoraði sigurmark Arsenal gegn Tottenham í dag úr vítaspyrnu. 14. mars 2021 19:30 Aubameyang á varamannabekk Arsenal vegna agabrots Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, er ekki í byrjunarliði liðsins gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann ku vera í agabanni. 14. mars 2021 16:16 Arsenal kom til baka og vann Norður-Lundúnaslaginn Arsenal kom til baka og vann Tottenham Hotspur 2-1 í Norður-Lundúnaslag ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn var frábær skemmtun og hefðu mörkin hæglega geta orðið mun fleiri. 14. mars 2021 18:25 Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira
Ósáttur með fyrri hálfleiks frammistöðu sinna manna og spurði hvort dómararnir kæmu ekki í viðtöl eftir leik José Mourinho, þjálfari Tottenham Hotspur, var ekki alveg sammála dómara Norður-Lundúnaslagsins. Alexandre Lacazette skoraði sigurmark Arsenal gegn Tottenham í dag úr vítaspyrnu. 14. mars 2021 19:30
Aubameyang á varamannabekk Arsenal vegna agabrots Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, er ekki í byrjunarliði liðsins gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann ku vera í agabanni. 14. mars 2021 16:16
Arsenal kom til baka og vann Norður-Lundúnaslaginn Arsenal kom til baka og vann Tottenham Hotspur 2-1 í Norður-Lundúnaslag ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn var frábær skemmtun og hefðu mörkin hæglega geta orðið mun fleiri. 14. mars 2021 18:25