Bæta við ákæru á hendur lögreglumanninum vegna dauða Floyd Kjartan Kjartansson skrifar 11. mars 2021 15:41 Derek Chauvin (t.h.) með lögmanni sínum í réttarsal í Hennepin-sýslu í gær. Dómari í Minneapolis samþykkti að bæta við ákæru á hendur Derek Chauvin, lögreglumanni, sem er sakaður um að hafa orðið George Floyd að bana í fyrra. Chauvin er nú einnig ákærður fyrir manndráp án ásetnings og telja sérfræðingar það auka líkurnar á að hann verði sakfelldur.
Ákvörðun dómarans kom í kjölfar niðurstöður áfrýjunardómstóls en hann hafði áður fellt niður liðinn um manndráp án ásetnings þar sem hann taldi hann ekki eiga við í málinu. Réttarhöldin, sem hófust með vali á kviðdómendum í vikunni, geta nú haldið áfram en hætta var á að þau frestuðust um fleiri vikur eða mánuði vegna ágreinings um ákæruefnið, að sögn AP-fréttastofunnar. Fyrir átti Chauvin yfir höfði sér ákæru fyrir manndráp af gáleysi og manndráp. Lögspekingar telja það styrkja stöðu saksóknara að bæta við ákærunni um manndráp án ásetnings þar sem kviðdómendur hafa nú fleiri möguleika á að sakfella lögreglumanninn fyrrverandi. Chauvin, sem er hvítur, er sakaður um að hafa valdið dauða Floyd, óvopnaðs blökkumanns, þegar hann og þrír aðrir lögregluþjónar höfðu afskipti af honum í maí í fyrra. Hélt Chauvin hné sínu á hálsi Floyd í um níu mínútur þrátt fyrir að Floyd reyndi að segja honum að hann næði ekki andanum, andmæli vegfarenda og jafnvel eftir að hinir lögreglumennirnir bentu Chauvin á að þeir fyndu ekki lengur púls Floyd. Dauði Floyd varð kveikjan að mikilli mótmælaöldu gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju í Bandaríkjunum og víðar um heim.
Bandaríkin Dauði George Floyd Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira