Lík fótboltamanns fannst eftir tveggja daga leit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2021 10:00 Franco Acosta sést hér frá dögunum sínum með spænska félaginu Racing de Santander. EPA-EFE/Pedro Puente Hoyos Fótboltamaðurinn Franco Acosta fannst látinn í heimalandi sínu Úrúgvæ eftir að hafa reynt að synda yfir á með bróður sínum.
Franco Acosta var aðeins 25 ára gamall en hann er fyrrum leikmaður Villarreal og Racing Santander á Spáni. Á laugardagskvöldið þá reyndi Franco Acosta að synda yfir Arroyo Pando ánna í Canelones sýslu en hann var þá á ferðinni með bróður sínum. Bróðir hans sótti sér hjálp eftir Franco skilaði sér ekki yfir á hinn bakkann og leit hófst strax. Lík Franco fannst hins vegar ekki fyrr en tveimur dögum síðar. AHORA| Prefectura busca al futbolista de @clubatenasuy Franco Acosta en el arroyo Pando. El jugador de 25 años intentó cruzar nadando y no lo logró. Está @Subrayado pic.twitter.com/0dY1HSnnsZ— Sebas Giovanelli (@SebasGiovanelli) March 6, 2021 Franco Acosta spilaði fyrir yngri landslið Úrúgvæ og var meðal annars með á HM 20 ára liði árið 2015. Í framhaldinu fékk hann samning hjá spænska félaginu Villarreal. Hann hafði þá skorað 12 mörk í 17 leikjum með sautján ára landsliðinu og sex mörk í fjórtán landsleikjum með tuttugu ára landsliðinu. Villarreal lánaði hann í sex mánuði til Racing Santander en árið 2018 snéri hann aftur heim til Úrúgvæ. Acosta spilaði fyrst fyrir Boston River og svo með Plaza Colonia. Á síðustu leiktíð var hann aftur á móti kominn í b-deildarlið Atenas San Carlos. El Real Racing Club, de luto por el fallecimiento de su exfutbolista Franco Acosta https://t.co/2BVj5D7Aa0 pic.twitter.com/9OvH4LomaR— Real Racing Club (@realracingclub) March 8, 2021 Knattspyrnusamband Úrúgvæ minntist leikmannsins og sendi fjölskyldu, vinum og liðsfélögum Franco Acosta samúðarkveðjur. Spænska félagið Villarreal minntist hans einnig á samfélagsmiðlum sínum sem og Racing Santander. Deeply shocked and saddened by your passing. We will always remember you, Franco. RIP. pic.twitter.com/XDVtttulFj— Villarreal CF English (@Eng_Villarreal) March 8, 2021
Fótbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Fleiri fréttir Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Sjá meira