Manchester City vann sinn þrettánda deildarleik í röð er liðið vann 2-1 sigur á West Ham í fyrsta leik dagsins í enska boltanum. Þetta var tuttugasti sigur City í röð í öllum keppnum.
City komst yfir með sínu fyrsta skoti á marki í leiknum eftir hálftímaleik. Kevin de Bruyne gaf þá frábæra fyrirgjöf fyrir markið þar sem Ruben Dias var mættur og stangaði hann boltann í netið.
🧱 - John Stones and Rúben Dias while together on the pitch for @ManCity
— Gracenote Live (@GracenoteLive) February 27, 2021
1435 minutes
3 - Goals conceded
5 - Goals scored (Stones 4, Dias 1)#MCIWHU
Þetta var hans fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir City en einungis þrettán mínútum síðar var allt orðið jafnt á ný. Michail Antonio hafði skotið í stöng skömmu áður en nú jafnaði hann metin sem fylgdi á eftir skoti Jesse Lingad.
Staðan var 1-1 í hálfleik en sigurmarkið kom á 68. mínútu. Hornspyrna City var hreinsuð frá en Riyhad Mahrez kom boltanum aftur fyrir markið þar sem John Stones kom boltanum í netið. Þriðja mark hans á árinu.
City er á toppi deildarinnar með 62 stig, þrettán stigum meira en Manchester United, sem á þó leik til góða. West Ham er í fjórða sætinu með 45 stig.
Manchester City make it 2⃣0⃣ wins in a row 😲
— Sky Sports News (@SkySportsNews) February 27, 2021