Woods, sem unnið hefur fimmtán risamót, er enn á sjúkrahúsi í Kaliforníu en með fullri meðvitund og sýnir viðbrögð eftir slysið. Hann slasaðist illa í hægri fæti og það er „ekkert minna en kraftaverk“ að hann sé á lífi, að sögn Alex Villanueva lögreglustjóra í Los Angeles.
Ljóst er að Woods, sem í vetur fór í fimmtu aðgerðina vegna bakmeiðsla, verður að minnsta kosti lengi frá keppni. McIlroy var spurður út í þá staðreynd að ferli Woods gæti verið lokið:
„Hann er þrátt fyrir allt mannlegur og hefur þegar gengið í gegnum svo margt. Á þessu stigi held ég að allir ættu bara að gleðjast yfir því að hann sé enn meðal vor – að börnin hans hafi ekki misst pabba sinn. Það er mikilvægast. Golf er svo langt frá því að vera það sem skiptir máli núna,“ sagði McIlroy sem hefur í dag leik á fyrsta heimsmóti ársins, World Golf Championship.
Spurður nánar út í muninn á golfmótum með og án Woods svaraði McIlroy:
„Það er óhjákvæmilegt að einn daginn verði hann ekki með og það er eitthvað sem að golfíþróttin og PGA-mótaröðin verða að venjast. Auðvitað snýr hann vonandi aftur en ef ekki þá held ég að hann hafi áfram áhrif á íþróttina, hvort sem það er í gegnum golfvallahönnun sína, samtökin sín, með því að halda golfmót eða hvað. Kannski er þeim tíma lokið að við sjáum snillinginn með kylfu í höndunum en hann getur enn haft gríðarleg áhrif á íþróttina með ýmsum hætti,“ sagði McIlroy.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.