Stóri skjálftinn hluti af hrinu sem hófst í Krýsuvík fyrir nokkrum dögum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. febrúar 2021 11:56 Jarðskjálftahrina hófst í Krýsuvík fyrir nokkrum dögum. Vísir/Vilhelm Skjálfti að stærðinni 5,7 sem reið yfir klukkan 10:05 í morgun og átti upptök sín um þrjá kílómetra suðsuðvestur af Keili er hluti af hrinu sem hófst í Krýsuvík fyrir nokkrum dögum.
Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar klukkan 11:36 segir að frá því á miðnætti í nótt hafi mælst um 500 skjálftar í hrinunni. Annar skjálfti að stærð 4,2 mældist um klukkan 10:27 og átti hann upptök sín í Núpstaðahálsi innan við einn kílómeter norðvestur af Krýsuvík. Stærsti skjálftinn í morgun fannst víða um land og hefur Veðurstofan fengið tilkynningar meðal annars úr Vestur-Húnavatnssýslu, Ólafsvík og frá Hellu. „Rúmlega 500 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaganum í síðustu viku, um 100 fleiri en í fyrri viku. Mesta virknin var annars vegar við Fagradalsfjall, einkum síðari hluta vikunnar og hins vegar norðan og austan Grindavíkur. Stærsti skjálftinn við Fagradalsfjall var 2,3 að stærð þann 21. febrúar kl. 09:28 og sá stærsti við Grindavík, 2,8 þann 21. febrúar kl. 17.30. Engar tilkynningar bárust um að þessir skjálftar hefðu fundist. Þann 18. febrúar kl. 08:10 varð skjálfti 2,9 að stærð við Núpshlíðarháls. Það var stærsti skjálfti vikunnar. Um 20 jarðskjálftar mældust á Reykjaneshrygg, stærsti 18. febrúar kl. 08:16 M2,8. Athugið að skjálftavirknin er bundin við Reykjanesskaga. Aðrar staðsetningar á skjálftum eru óáreiðanlegar meðan verið er að fara yfir sjálfvirkar mælingar. Á kortum okkar birtast óyfirfarin gögn sem þýðir að þar má greina tákn um staðsetningu skjálfta utan Reykjanesskaga sem ekki eru áreiðanleg gögn,“ sagði í tilkynningu á vef Veðurstofunnar klukkan 10:30 í morgun.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira