Sky segir mikinn áhuga Man. Utd ekki duga til að Coman fari í sumar Sindri Sverrisson skrifar 18. febrúar 2021 16:59 Kingsley Coman vill vera hjá Bayern München enn um sinn. Getty/ M. Donato Manchester United er tilbúið að greiða Kingsley Coman 260.000 pund á viku, jafnvirði tæplega 50 milljóna króna, til að fá hann frá Bayern München en franski landsliðsmaðurinn telur að hann verði áfram hjá Bayern í nánustu framtíð.
Þetta segir í frétt Sky Sports þar sem fullyrt er að Coman ætli að halda kyrru fyrir hjá Bayern í sumar. Coman er einn þeirra leikmanna sem forráðamenn Bayern leggja áherslu á að gera nýjan samning við í stað þess að lenda í sömu stöðu og með David Alaba, sem fer frítt í sumar. Coman er með samning við Bayern sem gildir til næstu tveggja ára. Samkvæmt þýskum miðlum er hann aðeins á miðlungslaunum miðað við samherja sína í Bayern og vill fá úr því bætt, en Sky Sports segir engar viðræður hafa átt sér stað á milli Bayern og Coman síðustu vikur. Þýska blaðið Bild segir að Bayern óttist að United muni freista Coman með tvöfalt hærri launum en hann sé með núna hjá heims- og Evrópumeisturunum. Langt sé því í land í samningaviðræðum milli hans og Bayern. Coman er 24 ára gamall og hefur skorað þrjú mörk í þýsku 1. deildinni í vetur, og þrjú mörk í Meistaradeild Evrópu. Hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum gegn PSG í ágúst í fyrra.
Þýski boltinn Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Sjá meira