Landsbankinn hagnaðist um 10,5 milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2021 18:41 Í tilkynningu vegna uppgörs Landsbankans segir að lagt verði til við aðalfund að greiddur verði 4,5 milljarða króna arður til hluthafa. Vísir/Vilhelm Landsbankinn hf. hagnaðist um 10,5 milljarða króna í fyrra og arðsemi eiginfjár var 4,3 prósent. Árið 2019 var hagnaður bankans 18,2 milljarðar og arðsemi eiginfjár 7,5 prósent.
Þetta kemur fram í uppgjöri Landsbankans fyrir 2020 sem birt var í dag. Þar segir að markmið bankans sé að ná að lágmarki tíu prósenta arðsemi eiginfjár. Þar kemur einnig fram að kostnaður sem hlutfall af tekjum hækkaði á milli ára, úr 42,6 prósentum 2019 í 47,4 prósent 2020. Útlán Landsbankans jukust um 133,2 milljarða króna á síðasta ári og var vanskilahlutfall útlána 0,8 prósent við árslok. Það er sama hlutfall og við árslok 2019. Eigið fé Landsbankans var var 258,3 milljarðar króna við árslok 2020 og eignarfjárhlutfallið 25,1 prósent af áhættugrunni. Í tilkynningu vegna uppgjörs Landsbankans segir að lagt verði til við aðalfund að greiddur verði 4,5 milljarða króna arður til hluthafa. Það nemur 0,19 krónu á hlut eða 43 prósentum af hagnaði samstæðunnar árið 2020. Heildareignir Landsbankans jukust um 137,8 milljarða króna á milli ára og voru 1.564 milljarðar við árslok. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar eins og glærusýningu, áhættuskýrslu og fleira á vef bankans. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.Vísir/Vilhelm Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans: „Uppgjörið fyrir árið 2020 er til marks um traustan, skilvirkan og stöðugan rekstur bankans. Hagnaður bankans á árinu 2020 nam 10,5 milljörðum króna, arðsemin var 4,3% fyrir árið í heild og góð afkoma var af allri starfsemi bankans. Árangurinn er góður, sérstaklega ef haft er í huga að á árinu gjaldfærði bankinn um 12 milljarða króna vegna virðisbreytinga útlána en stór hluti af þeirri gjaldfærslu er vegna möguleika á útlánatöpum sem ekki hafa raungerst. Þetta uppgjör sýnir að bankinn er í sterkri stöðu til að styðja vel við viðspyrnu efnahagslífsins en einnig þá sem hafa orðið fyrir miklu tekjufalli vegna heimsfaraldursins. Áhersla á hagvæmni í rekstri heldur kostnaði stöðugum milli ára. Hlutfall kostnaðar af tekjum breytist lítið en það var 47,7% á árinu 2020. Rekstrarkostnaður stóð nánast í stað, líkt og verið hefur um árabil. Á sama tíma er mikil fjárfesting í stafrænni þróun. Á síðustu þremur árum hefur bankinn kynnt um 40 nýjungar í stafrænni þjónustu fyrir viðskiptavinum. Landsbankinn hefur aldrei lánað meira til íbúðakaupa eða endurfjármögnunar íbúðalána. Bankinn lækkaði vexti sex sinnum og þrátt fyrir miklar áskoranir vegna heimsfaraldursins gátum við mætt verulega aukinni eftirspurn eftir íbúðalánum og tryggt viðskiptavinum mjög góð og samkeppnishæf kjör. Við veittum rúmlega 10.000 einstaklingum og fjölskyldum íbúðarlán og hlutdeild bankans á íbúðalánamarkaði jókst í 26,3%. Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir tryggð viðskiptavina á ári þar sem öllum áætlunum var kollvarpað. Við veitum viðskiptavinum um land allt fjármálaþjónustu og þar af um 700 fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Við höfum stutt við viðskiptavini okkar og veitt þeim úrræði og aðstoð og vonumst öll til þess að með haustinu horfi til betri vegar. Starfsfólk bankans hefur staðið sig afburðavel, er úrræðagott og hefur sýnt mikla aðlögunarhæfni. Með góðu starfsfólki og vegna öflugrar stafrænnar þróunar gátum við boðið nánast óskerta þjónustu. Viðskiptavinir brugðust vel við breyttum aðstæðum, voru fljótir að tileinka sér nýjungar og fundu að Landsbankinn var til staðar. Á árinu 2021 vinnur Landsbankinn eftir nýrri stefnu, Landsbanki nýrra tíma. Stefnan fjallar um hvernig bankinn þróast í sífellu og nýtir stafræna tækni til að veita framúrskarandi fjármálaþjónustu með mannlegri nálgun. Við ætlum að einfalda viðskiptavinum lífið. Við hefjum árið með útgáfu nýrrar sjálfbærrar fjármálaumgjarðar og ætlum okkur áfram leiðandi hlutverk á sviði sjálfbærni. Það er Landsbanki nýrra tíma.“
Íslenskir bankar Mest lesið „Í eitt skipti hringdum við í fréttaskot DV því fyrir það fengum við pening!“ Atvinnulíf Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Viðskipti innlent Neytendastofa hjólar í hlaupara Neytendur Tugmilljarða hagsmunir í húfi Viðskipti innlent Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Atvinnulíf Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Viðskipti erlent Kjarninn farinn úr Heimildinni Viðskipti innlent Rafrettukóngur og Drekaeigandi sektaðir um 1,1 milljarð hvor Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anna nýr sjóðstjóri hjá SIV eignastýringu Tugmilljarða hagsmunir í húfi Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Kjarninn farinn úr Heimildinni Frá Sjálfstæðisflokknum til Viðskiptaráðs Gísli Rafn til Rauða krossins Eiga von á um 10 þúsund gestum Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Jarðefnaeldsneytisbílar um fimmtungur nýskráðra fólksbíla Ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka Rafrettukóngur og Drekaeigandi sektaðir um 1,1 milljarð hvor 22 sagt upp í einu hópuppsögn janúarmánaðar Heimsfræg bangsaverksmiðja opnuð í Smáralind 40 prósent ódýrara að leigja af óhagnaðardrifnum félögum Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Birgir hættir hjá Skaga Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Bein útsending: Fjármálaþjónusta framtíðarinnar Rannveig kjörin heiðursfélagi Icelandair hefur flug til Miami Verðbólga mjakast niður á við Ráðin fræðslustjóri Samkaupa Sjá meira