Suðlægari átt og snjókoma í öllum landshlutum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. febrúar 2021 07:11 Veðrið í dag verður svipað og undanfarna daga en á morgun snýst til suðlægari átta með snjókomu í öllum landshlutum og hlýnandi veðri sunnantil. Vísir/Vilhelm Það verður lítil breyting á veðrinu í dag sem hefur verið nokkuð stöðugt undanfarna daga, eins og það er orðað í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Þannig er spáð norðaustan þremur til tíu metrum á sekúndu í dag en stífari vindi á Vestfjörðum og Breiðafirði. Snjókoma eða él víðast hvar, þó úrkomuminnst á Vesturlandi. Áfram verður nokkuð kalt á landinu, frost á bilinu núll til tíu stig en hiti við frostmark syðst. „Á morgun snýst til suðlægari áttar og henni fylgir snjókoma í öllum landshlutum og heldur hlýnandi veður sunnantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Norðaustan 3-10 m/s en 10-15 norðvestantil. Dálítil snjókoma um landið norðanvert en él sunnanlands. Suðlæg átt, 5-13 á morgun en norðaustan 5-10 á Vestfjörðum. Snjókoma með köflum, einkum sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 10 stig en hiti um og yfir frostmarki syðst. Á miðvikudag: Breytileg átt 5-13 m/s og víða dálítil snjókoma eða él en hægari vindur á Austurlandi framan af degi. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst. Á fimmtudag: Suðaustan 8-13 m/s, él og hiti um og yfir frostmarki sunnan- og vestanlands, en hægari vindur, þurrt og frost 0 til 5 stig norðaustantil. Á föstudag: Suðaustan 8-15 m/s, hvassast syðst. Él sunnantil og hiti 0 til 4 stig. Bjart með köflum og vægt frost um norðanvert landið. Á laugardag: Ákveðin suðaustanátt með slyddu og síðar rigningu en úrkomulítið á Norðurlandi. Hlýnandi veður. Á sunnudag: Suðaustanátt og rigning en áfram úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 3 til 8 stig. Á mánudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt með dálítilli rigningu sunnan- og suðaustanlands en annars bjart með köflum. Hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira