Þyrftu alltaf að reyna á hjarðónæmi burtséð frá Pfizer-rannsókn Birgir Olgeirsson skrifar 8. febrúar 2021 18:31 Sóttvarnalæknir segir lyfjafyrirtækið Pfizer ekki hafa gert kröfu um að landamærin verði opnuð í nafni bóluefnarannsóknar og ekki standi til að stefna heilsu þjóðarinnar í hættu. Slakað verði þó á sóttvarnaaðgerðum á landamærunum þegar bólusetningar eru langt komnar
Þrátt fyrir háværan orðróm tók sóttvarnalæknir fram að hvorki samningur né samningsdrög lægju fyrir. Hann sagði margar flökkusögur í gangi um þessar viðræður en fullvissaði fólk um að réttar upplýsingar yrðu gefnar strax og þær liggja fyrir. Bóluefnarannsókn Íslands og Pfizer á í grófum dráttum að snúast um hversu vel bóluefni fyrirtækisins verndar heila þjóð fyrir kórónuveirunni. Sóttvarnalæknir segir ekki ljóst hvort af þessu verkefni verður né hversu marga bóluefnaskammta Íslendingar fá eða hvenær. Þrálátur orðrómur er uppi í samfélaginu að Pfizer geri kröfu um að sóttvarnaaðgerðum á landamærunum verði aflétt svo hægt verði að sjá hversu vel bóluefnið virki gegn veirunni. Engar kröfur frá Pfizer um að „opna“ Þórólfur með fyrstu skömmtunum af Pfizer-bóluefninu sem komu til landsins í desember. Vísir „Við höfum ekki verið í neinum samningaviðræðum um það hvernig þetta verður útfært. Það er væntanlega eitthvað sem samningsdrögin munu taka á. Ég á ekki von á einhverjum svona kröfum. En tilgangurinn með að bólusetja og bólusetja marga er að slaka á öllum aðgerðum en gera það innan þeirra marka sem teljum skynsamlegast, en ég hef ekki séð neinar kröfur um það,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Hann segir mörkin ekki grafin í stein. Þau fari eftir því hvernig álagið er á landamærin og hvernig faraldurinn þróist erlendis. „Við gætum gert ýmsar útfærslur á því hvort menn vilji hafa einfalda skimun eða tvöfalda skimun eða hvernig það nú verður. En það sem allir eru að horfa til er að fá útbreidda bólusetningu og þá getum við slakað á, og ég held að allar þjóðir séu að horfa til þess.“ Alltaf markmiðið að opnað og slakað á Samfélagssmit er í lágmarki á Íslandi, er þá einhvern veginn hægt að framkvæma bóluefnarannsókn öðruvísi en að það sé smit á Íslandi og við fáum það ekki öðruvísi en að opna landamærin? „Nei, hvort sem við köllum það rannsókn eða hvort við viljum bara stuðla að útbreiddri bólusetningu, þá er það alltaf markmiðið að geta opnað og slakað á þeim takmarkandi aðgerðum sem eru í gangi. Það myndi ekki vera krafa rannsóknarinnar vegna. Þetta er það sem allir eru að horfa upp og við viljum sjá á staðlaðan máta ef við slökum á hér innanlands og ef það verður slakað á á landamærunum og svo framvegis. Á einhverjum tímapunkti verður það að gerast, hvort sem okkur líkar betur eða verr.“ Komufarþegar í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vísir/Vilhelm Þannig að það yrði alltaf einhvern veginn að reyna á hjarðónæmið, ef þessi rannsókn á að vera? „Að sjálfsögðu, annars myndum við bara vera lokuð alveg þangað til veiran verður útdauð í heiminum,“ svarar Þórólfur. Ráðamenn þyrftu að samþykkja rannsókn Þórólfur segir að ef samningar takast við Pfizer um bóluefnarannsókn hér á landi þá þyrfti málið að fara í gegnum ákveðna ferla. „Ef þetta er gert í nafni rannsóknarinnar þá fer það náttúrlega allt í gegnum nauðsynlega ferla. Ráðamenn þjóðarinnar þurfa að samþykkja þetta. Þetta myndi fara í gegnum alla ferla hjá vísindasiðanefnd og Persónuvernd og svo framvegis.“ Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur þyrfti að samþykkja rannsóknina að sögn sóttvarnalæknis. Vísir/Vilhelm Íslensk erfðagreining myndi hafa aðkomu að þessari rannsókn. „Það er sennilega enginn hér innanlands sem gæti tekið að sér að útfæra þessa rannsókn. Þetta yrði samvinnu við íslenska aðila fleiri. En ég bendi á að þetta er ekki einhver tilraun á Íslendingum eða íslenskri þjóð, heldur erum við að gera þetta á staðlaðan máta þar sem við erum að setja upp rannsóknarspurningar. Hvort sem þetta heitir rannsókn eða ekki rannsókn, þá myndum við alltaf vilja bólusetja sem flesta á Íslandi. Það myndi bara taka miklu lengri tíma og það yrði erfiðara að fylgjast með árangri bólusetningarinnar.“ Vilja bólusetja hraðar En nú er staðan mjög góð á Íslandi og við höfum samið um bóluefni sem við fáum næstu mánuði. Er þörf á því að skuldbinda sig við fyrirtæki um rannsókn til að bólusetja þjóðina fyrr? „Eins og staðan er núna þá er útlit fyrir að við munum geta bólusett 30 þúsund manns fyrir lok mars. Það er ekkert voðalega stór hluti af íslenskri þjóð. Við viljum helst geta bólusett hraðar og líka til að svara þessum spurningum. Ef þetta gengur með þessum hraða áfram, þá verður erfitt að svara þessum rannsóknar spurningum sem ég held að sé nauðsynlegt að svara á einn eða annan hátt.“ Rannsóknin ógni ekki heilsu þjóðar Telur þú að þessi rannsókn muni ógna heilsu íslenskrar þjóðar? „Nei, það held ég ekki. Þvert á móti. Ég held að hún geti verið mjög hjálpleg. Í fyrsta lagi hafa þessi bóluefni, þar á meðal Pfizer, sýnt að þau eru mjög örugg. Og ég held að við og þær upplýsingar sem við fáum úr svona rannsókn munu verða mjög hjálplegar. Ekki bara fyrir okkur heldur aðrar þjóðir líka. Þetta er ekki tilraun á þjóðinni. Eftir sem áður munum við hvetja alla til að mæta í bólusetningu, þó það tæki langt fram á þetta ár. Það breytir engu, við myndum vilja bólusetja jafn marga eftir sem áður.“ Og þið mynduð alltaf fara varlega í afléttingar á landamærunum ef þið fengjuð alla þessa skammta frá Pfizer? „Já við myndum gera það varlega í það og gera það á okkar forsendum eftir sem áður.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Tengdar fréttir Segir að réttar upplýsingar um mögulega rannsókn Pfizer verði veittar þegar þær liggja fyrir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir engin samningsdrög frá Pfizer liggja á borðinu varðandi rannsóknarverkefni á bólusetningu íslensku þjóðarinnar með bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19, en hávær orðrómur hefur verið á kreiki undanfarna daga um að samningur við Pfizer sé í höfn. 8. febrúar 2021 11:27 Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Innlent Bíll í ljósum logum Innlent Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Innlent Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Innlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Fleiri fréttir Endurræsa vélarnar og bjarga páskunum Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Tókust á um Borgarlínuna Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Aflýsa hættustigi og rýmingum á Seyðisfirði Opinn fundur í utanríkismálanefnd um ESB atkvæðagreiðslu Burðardýr í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Handtóku mann fyrir að stela dekkjum Sjá meira
Segir að réttar upplýsingar um mögulega rannsókn Pfizer verði veittar þegar þær liggja fyrir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir engin samningsdrög frá Pfizer liggja á borðinu varðandi rannsóknarverkefni á bólusetningu íslensku þjóðarinnar með bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19, en hávær orðrómur hefur verið á kreiki undanfarna daga um að samningur við Pfizer sé í höfn. 8. febrúar 2021 11:27