Játar að hafa myrt konuna Atli Ísleifsson skrifar 3. febrúar 2021 09:39 Maðurinn var handtekinn í gærmorgun, skömmu eftir að hafa tilkynnt um hvarf konunnar. Getty Fyrrverandi sambýlismaður íslensku konunnar sem fannst myrt á Jótlandi hefur játað að hafa orðið henni að bana.
Jyllands-Posten greinir frá þessu en maðurinn var leiddur fyrir dómara í Árósum í morgun. Þar segir að grunur leiki á að maðurinn hafi þrengt að öndunarvegi konunnar, hinni 43 ára Freyju Egilsdóttur, svo að hún lést. Hafi hann svo bútað líkið niður með sög og falið líkamsleifar hennar á heimilinu í bænum Malling og grafið einhverja í garðinum. Lögregla á Austur-Jótlandi lýsti í gær eftir konunni sem búsett hefur verið í Malling, suður af Árósum, á Jótlandi. Konan hafði búið í Danmörku um árabil og stofnað til fjölskyldu þar í landi. Hinn grunaði í málinu tilkynnti lögreglu um hvarfið í gærmorgun og sagði þá að ekkert hafi sést til hennar síðan á fimmtudag. Grunur lögreglu fór fljótlega að manninum og var hann handtekinn. JP segir frá því að maðurinn, með grátt hár og gleraugu og í bláum búningi, hafi færður fyrir dómara í Árósum í morgun þar sem farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald. Réttarmeinarannsókn fer fram í dag. Danskir fjölmiðlar greindu frá því að konan hafi starfað á öldrunarheimili í bænum Odder. Smáskilaboð hafi borist til vinnuveitenda á laugardaginn þar sem hún tilkynntium veikindi. Þó sé óljóst hvort hún hafi raunverulega sent umrædd skilaboð. Fréttin hefur verið uppfærð.
Danmörk Íslendingar erlendis Morð í Malling Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira