Að minnsta kosti 70 börn frá Marshall-eyjum seld bandarískum pörum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. janúar 2021 20:01 Majuro er bæði höfuðborg Marshall eyja og eitt fjölda hringrifa sem mynda ríkið. Wikimedia Commons/Christopher Michel Að minnsta kosti 70 börn frá Marshall-eyjum voru seld bandarískum pörum eftir að þungaðar mæður þeirra höfðu verið lokkaðar til að yfirgefa heimili sín og fjölskyldur fyrir 1,3 milljónir króna og loforð um betra líf í Bandaríkjunum.
Sá sem hafði milligöngu um „ættleiðingarnar“ fékk allt að 5,2 milljónir greiddar fyrir hvert barn og hefur játað að hafa stundað mansal og fremja önnur tengd brot. „Í áraraðir vörpuðu Bandaríkin kjarnorkusprengjum í bakgarðinum okkar,“ segir blaðamaður frá Majuro í samtali við Guardian. „En þetta; þetta er eins og að sprengja springi heima hjá þér. Í fjölskyldunni þinni. Þetta eyðileggur allt,“ segir hann um afleiðingar mansalsins á feðurna og börnin sem mæðurnar yfirgáfu. Paul Petersen, 45 ára kjörinn embættismaður í Arizona, var í desember síðastliðnum dæmur í 74 mánaða fangelsi vegna málsins og til að greiða 100 milljónir króna í sekt, skaðabætur og málskostnað. Hann sagði í dómsal að honum hefði gengið gott eitt til og harmaði að hann myndi missa af því að ala upp eigin börn vegna fangelsisdómsins. „Ég biðst afsökunar... Ég reyndi að búa til hamingjusamar fjölskyldur en eyðilagði með því mína eigin,“ sagði hann. Snérist um peninga Það var þó lítil hamingja sem Rolson Price upplifði þegar hann snéri heim til Marshall-eyja eftir vinnuferð og komst að því að konan hans og barnsmóðir var horfin. Parið átti von á dóttur, sem Price hefur aldrei hitt. Hún hafði skilið eftir skilaboð; hún var farin til Bandaríkjanna en hafði skilið ungan son þeirra eftir. Fyrst um sinn sendi hún peninga heim og þau ræddu saman í gegnum sameiginlega vini um hvað biði fjölskyldunnar þeirra. En svo ekki meir. Ákæruvaldið segir enga ástæðu til að ætla að pörin sem ættleiddu börnin hafi vitað að um ólölegan gjörning væri að ræða.Unsplash/Gabriel Tovar „Hún vildi peningana. Þess vegna fór hún... af því þeir buðu henni peninga,“ segir Price. „En þeir hugsa ekki um hvað þær skilja eftir. Af hverju myndirðu gera fjölskyldu það? Af hverju tók hann konuna mína og barnið?“ spyr hann. Fyrir ákæruvaldinu í Bandaríkjunum er svarið einfalt: Þetta var leið fyrir Petersen að verða ríkur. Og hvernig var framkvæmdin? Jú, hann smyglaði fátækum konum og ófæddum börnum þeirra frá Marshall-eyjunum til Bandaríkjanna fyrir allra augum og fyrir dágóð umboðslaun. Milliliðurinn gaf sjálfur frá sér tvö börn Petersen kom fyrst til Marshall-eyja árið 1998 og starfaði sem trúboði. Á tveimur árum lærði hann tungumálið og kynntist menningu eyjanna. Þegar hann snéri aftur til Bandaríkjanna setti hann á fót ættleiðingaþjónustu og nýtti sér nýmynduð tengsl til að komast í samband við fátækar verðandi mæður. „Petersen hrósaði sér af því á netinu að geta hjálpað pörum að ættleiða börn án milligöngu hefðbundinna ættleiðingamilliliða eða opinberra stofnana. Hann fékk konu á eyjunum til liðs við sig en hún hafði upp á fátækum þungunð konum og einblíndi meðal annars á þær sem voru ómenntaðar og höfðu starfað við vændi. Lynwood Jennet, sem einnig játaði brot sín, sagðist sjálf hafa látið bandarísk pör fá tvö barna sinna í gegnum Petersen. Jennet vingaðist við konurnar og bauð þeim aðstoð og peninga. Hún útvegaði þeim pappíra til að geta ferðast og flaug með þeim til Bandaríkjanna og kom þeim fyrir á nokkurs konar áfangaheimili. Þar sváfu konurnar oft á gólfinu og í sumum tilvikum voru vegabréfin tekin af þeim til þær gætu ekki flúið. Þá aðstoðaði Jennet konurnar einnig við að komast að hjá sjúkratrygginum (Medicaid) til að hið opinbera stæði undir kostnaðinum við fæðingarnar. Mæðurnar fengu svo einhverjar greiðslur í einn eða tvo mánuði eftir að þær afhentu börnin en voru svo sendar aftur til Marshalleyja eða eitthvert annað í Bandaríkjunum. Petersen á yfir höfði sér fleiri ákærur í tengslum við málið.
Marshall-eyjar Réttindi barna Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira