Moyes sótti loks sigur á sinn gamla heimavöll Arnar Geir Halldórsson skrifar 1. janúar 2021 19:25 Hetja West Ham. vísir/Getty David Moyes vann loksins sigur á sínum gamla heimavelli, Goodison Park, þegar lærisveinar hans í West Ham unnu dramatískan sigur í bragðdaufum leik í dag. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var á sínum stað í byrjunarliði Everton. Leikmenn liðanna virtust hafa vakað langt fram eftir á nýársnótt því leikurinn var afar bragðdaufur og lítið sem ekkert um góða tilburði langstærstan hluta leiksins. Gylfa var skipt af velli á 65.mínútu fyrir Andre Gomes og á sama tíma kom James Rodriguez inn af bekknum fyrir Bernard. Ekki tókst þeim að glæða sóknarleik Everton nýju lífi. Þvert á móti voru það gestirnir sem náðu inn sigurmarki á lokamínútunum því hinn tékkneski Tomas Soucek var réttur maður á réttum stað eftir misheppnað skot Aaron Cresswell á 86.mínútu og tókst honum að stýra boltanum í netið. David Moyes stýrði Everton um langt skeið en þetta var í fyrsta skiptið síðan hann yfirgaf félagið árið 2013 sem honum tekst að vinna leik á Goodison Park. West Ham í tíunda sæti deildarinnar en Everton áfram í því fjórða. Fótbolti Enski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn