Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14.
Fundurinn verður sem fyrr í beinni útsendingu á Vísi, Stöð 2 Vísi og í textalýsingu hér að neðan.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Alma D. Möller, landlæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.
Gestur fundarins verður Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Uppfært: Fundinum er lokið en upptöku frá honum má sjá að neðan.