Innlent

Krónan, samgöngur, mígreni og Heiðmörk til umræðu í Bítinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Gulli, Heimir og Þráinn stýra Bítis-skútunni.
Gulli, Heimir og Þráinn stýra Bítis-skútunni. Vísir

Af hverju er krónan svona veik og þarf hún að vera veik? Þetta eru spurningar sem skoðaðar verða í Bítinu á Bylgjunni í dag, mánudaginn 27. apríl. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, mun fara yfir málið í þættinum.

Þá verður rætt við Kristján Sigurðsson frá Túristi.is undir liðnum Flugið og ferðamenn. Hann mun ræða það hvenær flugið og ferðamennskan gætu farið í gang aftur. Hvenær fólk gæti farið að fljúga á nýjan leik og hvort það yrði með sama hætti og áður.

Bergþór Ólason og Jón Gunnarsson þingmenn Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins og formaður og varaformaður Umhverfis- og samgöngunefndar munu mæta í þáttinn og ræða samgöngur til og frá landinu og stöðu Icelandair.

Einnig verður rætt við Birgi Jónsson, forstjóra Íslandspósts. Hann sagði í Morgunblaðinu um helgina að póstþjónusta á landinu væri komin 50 ár aftur í tímann. Svo lítið væri um flug að pósturinn væri sendur með skipi. Rætt verður við hann um stöðu Póstsins á tímum heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.

Ólöf Þórhallsdóttir frá lyfjafyrirtækinu Florealis mun ræða um mígreni og mögulega lausn við því úr náttúrunni. Staðan verður tekin á Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá ríkislögreglustjóra.

Loks verður rætt við Ólaf Guðmundsson umferðaröryggissérfræðing um veginn í Heiðmörk og slæmt viðhald hans.

Þátturinn hefst á slaginu 6:50 og stendur yfir til klukkan 10. Hægt er að fylgjast með þættinum á Bylgjunni og sömuleiðis sjónvarpsútsendingu úr útvarpsstúdíóinu hér á Vísi og á rásinni Stöð 2 Vísi í sjónvarpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×