Á listanum yfir markahæstu táninga Meistaradeildar Evrópu, í núverandi mynd, er hvorki að finna Lionel Messi né Cristiano Ronaldo. Leikmennirnir sem gætu fetað í fótspor þeirra er hins vegar að finna á listanum.
„Ef þú ert nógu góður þá ertu nógu gamall,“ sagði Sir Matt Busby, þjálfari Manchester United um miðja síðustu öld, á sínum tíma. Þau ummæli eiga enn vel við.
Vefsíðan Squawka ávað að taka saman markahæstu táninga Meistaradeildar Evrópu, eða frá því að keppnin tók á sig núverandi mynd árið 1992. Alls eru sjö manns á listanum og mögulega koma eitt eða tvö nöfn á óvart.
7. Bojan Krkić
Mörk í Meistaradeild Evrópu á táningsaldri: Fimm
Ferill: Barcelona, Roma, AC Milan, Ajax, Stoke City, Mainz 05, Alaveg og Montreal Impact.
Spánverjinn Bojan Krkić var með efnilegri leikmönnum Barcelona á sínum tíma. Á endanum gekk það ekki upp og hann fór á lán til AC Milan og Ajax áður en enska félagið Stoke City, þá í ensku úrvalsdeildinni, keypti kauða.
Hinn 29 ára gamli Bojan, sem hefur skorað í fimm stærstu deildum Evrópu (England, Ítalía, Spánn, Holland og Þýskaland), skoraði á sínum tíma fimm mörk í Meistaradeildinni en það verður að teljast ólíklegt að hann leiki í henni aftur.

6. Yakubu Aiyegbeni
Mörk í Meistaradeild Evrópu á táningsaldri: Fimm
Ferill: Julius Berger, Gil Vicente, Maccabi Haifa, Hapoel Kfar Saba, Portsmouth, Middlesbrough, Everton, Leicester City, Blackburn Rovers, Guangzhou R&F, Al-Rayyan, Reading, Kayserispor og Coventry City
Yakubu eins og hann er oftast kallaður lék í alls sjö löndum áður en hann lagði skóna á hilluna. Flestir unnendur ensku úrvalsdeildarinnar ættu að þekkja Yakubu sem gerði garðinn frægan með Everton á sínum tíma.
„Feed the Yak“ eða einfaldlega „Fóðrið Yak“ ómaði reglulega á Goodison Park, heimavelli Everton, forðum daga.
Yakubu lék aðeins eina leiktíð í Meistaradeild Evrópu. Tímabilið 2002 til 2003 lék hann fimm leiki með ísraelska liðinu Maccabi Haifa og skoraði fimm mörk. Þar á meðal gegn Manchester United.

5. Raúl
Mörk í Meistaradeild Evrópu á táningsaldri: Sex
Ferill: Real Madrid, Schalke 04, Al Sadd og New York Cosmos
Raúl þarf varla að kynna enda alger goðsögn hjá Real Madrid. Ef ekki væri fyrir ómennska markaskorun Cristiano Ronaldo fyrir Madrídar-liðið þá væri Raúl enn eflaust markahæsti leikmaður í sögu félagsins.
Vann hann Meistaradeildina alls þrisvar sinnum ásamt því að skora 71 mark í keppninni. Aðeins tveir leikmenn hafa skorað fleiri mörk en Raúl í Meistaradeild Evrópu. Þið megið giska hvaða tveir.
4. Karim Benzema
Mörk í Meistaradeild Evrópu á táningsaldri: Sex
Ferill: Lyon og Real Madrid
Franski framherjinn Karim Benzema var sannkallað undrabarn á sínum tíma og er mögulega með vanmetnari knattspyrnumönnum síðari ára. Hann skoraði sex af 64 mörkum sínum í Meistaradeildinni áður en hann varð tvítugur.
Benzema hefur lyft Meistaradeildarbikarnum alls fjórum sinnum með Real Madrid og hver veit nema hann bæti við titli, og mörkum, áður en hann leggur skóna á hilluna. Hann verður 33 ára gamall í desember á þessu ári.

3. Patrick Kluivert
Mörk í Meistaradeild Evrópu á táningsaldri: Sjö
Ferill: Ajax, AC Milan, Barcelona, Newcastle United, Valencia, PSV og Lille
Patrikc Kluivert var á sínum tíma einn skæðasti framherji Evrópu. Sigurmark hans í úrslitaleiknum árið 1995 gerði hann að yngsta markaskorara í sögu úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Met sem stendur enn þann dag í dag.
Alls skoraði hann 29 mörk í Meistaradeildinni á sínum tíma, þar af sjö áður en hann varð tvítugur.

2. Erling Braut Håland
Mörk í Meistaradeild Evrópu á táningsaldri: Tíu
Ferill: Bryne, Molde, Red Bull Salzburg og Borussia Dortmund
Það ótrúlega hér er að Erling Håland er enn táningur. Hann verður ekki tvítugur fyrr en 21. júlí á þessu ári. Ótrúlegur leikmaður sem hefur átt góðu gengi að fagna með Salzburg og Dortmund. Hvort gott gengi hans í Meistaradeildinni haldi áfram eftir að hann nær tvítugsaldri á eftir að koma í ljós en annað kæmi á óvart.
1. Kylian Mbappé
Mörk í Meistaradeild Evrópu á táningsaldri: Þrettán
Ferill: AS Monaco og Paris Saint-Germain
Mbappé hefur gert fátt annað undanfarin misseri en að setja hvert metið á fætur öðru. Hann skoraði sex mörk á sínu fyrsta tímabili í Meistaradeildinni með Monaco þegar liðið komst í undanúrslit vorið 2017.
Síðan þá hafa sjö mörk fylgt í kjölfarið og þó Mbappé eigi enn eftir að komast alla leið í úrslitaleik keppninnar þá verður að teljast líklegt að það takist á endanum.
Kylian Mbappé was the first player in history to score in each of his first four Champions League knockout games.
— Squawka Football (@Squawka) August 10, 2017
Record breaker. pic.twitter.com/nVJT8E1xoX