Sendir herinn út á götur í Lesótó Atli Ísleifsson skrifar 18. apríl 2020 14:33 Thomas Thabane tók við embætti forsætisráðherra í Lesótó árið 2017, sama ár og þáverandi eiginkona hans var myrt. Getty
Forsætisráðherra Afríkuríkisins Lesótó, sem sakaður er um að hafa átt aðild að morðinu á fyrrverandi eiginkonu sinni, hefur fyrirskipað að herinn skuli halda út á götur til að koma aftur á röð og reglu í landinu. Thomas Thabane sakaði í sjónvarpsávarpi ónafngreinda aðila innan lögreglu að grafa undan lýðræðinu í landinu. Ákvörðun forsætisráðherrans kemur degi eftir að stjórnlagadómstóll landsins felldi úr gildi ákvörðun hans að leysa upp þingið. Thabane hefur tekist að halda í valdataumana þrátt fyrir að hafa sætt miklum þrýstingi um að segja af sér vegna meintrar aðildar að morðinu á þáverandi eiginkonu sinni, Lipolelo Thabane, árið 2017. Þau áttu þá í hatrammri skilnaðardeilu. Tveimur mánuðum eftir morðið gekk Thabane að eiga núverandi eiginkonu sína, Maesaiah, en hann bjó með henni á þeim tíma sem morðið var framið. Maesaiah Thabane var í febrúar ákærð fyrir morðið á Lipolelo, en hefur síðan verið sleppt gegn tryggingu. Lögmenn forsætisráðherrans segja að hann eigi að njóta friðhelgi í nafni embættisins. Hinn áttræði forsætisráðherra hefur áður sagt að hann muni láta af embætti í júlí, en innan flokks forsætisráðherrans hefur verið þrýst á hann að hætta fyrr.
Lesótó Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Sjá meira