Innlent

Asbest-klæðning í útihúsi sem brann til kaldra kola í nótt

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Brunavarnir Suðurnesja stóðu í stórræðum í nótt.
Brunavarnir Suðurnesja stóðu í stórræðum í nótt. Vísir/Einar Árnason

Útihús við Merkines í Höfnum á Reykjanesi varð alelda í nótt. Allt tiltækt slökkvilið frá Bunavörnum Suðurnesja auk lögreglu var kallað til vegna eldsins en hlaðan þar sem eldurinn kom upp er brunnin til kaldra kola. Asbest var í klæðningu hlöðunnar sem brann.

Það var upp úr klukkan eitt í nótt sem tilkynning barst um eldinn og var hlaðan orðin alelda þegar slökkvilið bar að garði. Slökkvistarfi lauk klukkan rúmlega fjögur í nótt en slökkvilið þurfti að fara aftur í morgun til að slökkva glæður sem höfðu kviknað að nýju í rústum hússins. Engan sakaði í brunanum.

„Þetta var alelda þegar þeir komu að þessu, Þetta er svona steyptur kjallari og timburhús ofan á og þetta var alelda,“ segir Ármann Árnason, varðstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja, í samtali við Vísi en sjálfur var hann ekki á vettvangi í nótt.

Ekkert liggur fyrir á þessari stundu um möguleg eldsupptök. „Við fengum tilkynninguna bara strax þegar við komum á staðinn að það væri asbest í klæðningum þarna inni. Þannig að það þurfti að fara mjög varlega í sambandi við að vera í reyknum og öllu. Þannig að það voru allir í reykköfunarbúnaði á staðnum og við þurftum að fá viðbótarvatn úr tankbíl,“ segir Ármann.

„Asbestið er ekki gott þegar það fer svona út í andrúmsloftið.“

Víkurfréttir fjölluðu um brunann í nótt og birtir myndskeið af eldinum þar sem glögglega má sjá um hversu mikinn eld var að ræða. Samkvæmt frétt Víkurfrétta fundu íbúar í Suðurnesjabæ, bæði í Sandgerði og Garði, sterka brunalykt í nótt án þess að vita að upptök eldsins væru við Hafnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×