Féllu á lyfjaprófi en hafa spilað reglulega síðan Anton Ingi Leifsson skrifar 23. desember 2020 12:00 Mohamad Camara er annar þeirra sem féll á lyfjaprófinu. Hann hefur þó ekki, hingað til, verið sendur í bann. Johann Schwars/Getty Mohamed Camara og Sekou Koita eru leikmenn RB Salzburg í Austurríki. Þeir eru sagðir hafa fallið á lyfjaprófi í síðasta mánuði en hafa hins vegar spilað reglulega síðan þá.
Camara og Koita koma báðir frá Malí og voru í landsliðsverkefni í síðasta mánuði. Eftir að hafa komið heim úr ferðinni með landsliðinu voru þeir teknir í lyfjapróf fyrir leik liðsins gegn Bayern Munchen í Meistaradeildinni. Þar á prófið að hafa verið jákvætt. Þeir eru sagðir hafa fengið lyf vegna slappleika fyrir leik Malí og Namibíu þann 17. nóvember en lyfin eru sögð á bannlista UEFA. Í yfirlýsingu Salzburg greindu þeir ekki frá því hvaða lyf þetta ku vera en þeir virðast ósáttir með þá meðferð sem Camara og Koita hafa fengið með landsliðinu. „Við erum mjög stoltir af því þegar leikmenn okkar eru kallaðir upp í landsliðið. Í landsliðum er þó hægt að krefjast þess að læknateymið sé á landsliðsstigi og að þeir þekki reglurnar,“ sagði framkvæmdastjóri Salzburg, Stephan Reiter, í yfirlýsingu. Camara og Koita hafa spilað reglulega fyrir Salzburg síðan þeir féllu á lyfjaprófinu en Salzburg hefur sagt við fjölmiðla að þeim hafi ekki borist nein melding frá UEFA að leikmennirnir væru komnir í bann. UEFA vildi ekki tjá sig um málið. Salzburg er í efsta sæti austurríska boltans en liðið er einnig á leið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir að hafa lent í þriðja sæti A-riðils Meistaradeildarinnar. Red Bull Salzburg duo Mohamed Camara and Sekou Koita FAIL drugs tests https://t.co/Qi0RmYJsiT— MailOnline Sport (@MailSport) December 22, 2020
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Freyr rekinn frá Brann Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Milner hættur í fótbolta Gerði óþekktan leikmann heimsfrægan Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Sjá meira