Lokaumferðin í Noregi: Viðar Örn og Matthías felldu Start, markalaust í Íslendingaslagnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. desember 2020 19:06 Viðar Örn var á skotskónum í kvöld. Vålerenga Alls fóru fimm leikir fram í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Viðar Örn Kjartansson skoraði er Vålerenga felldi Start og tryggði sér 3. sæti deildarinnar. Þá gerðu Sandefjord og Rosenborg markalaust jafntefli.
Viðar Örn kom Vålerenga á bragðið eftir aðeins fimm mínútna leik gegn Start sem átti aldrei möguleika í kvöld. Staðan var orðin 3-0 eftir hálftíma leik og þannig var hún enn er Matthías Vilhjálmsson leysti Viðar Örn af hólmi í því sem var síðasti leikur Matthíasar fyrir félagið. Vålerenga bætti við fjórða markinu undir lok leiks og vann sannfærandi 4-0 sigur. Tryggði það liðinu þrðja sæti deildarinnar. Jóhannes Harðarson er þjálfari Start en Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í leikmannahópnum. Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í miðverði Rosenborg sem gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Sandefjord. Viðar Ari Jónsson spilaði síðasta hálftímann í liði heimamanna. Rosenborg endaði í fjórða sæti og Sandefjord því ellefta. Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn í miðverði Brann sem vann Odds BK 2-1 á heimavelli. Brann endaði í tíunda sæti deildarinnar. Davíð Kristján Ólafsson lék fyrri hálfleik í 3-0 tapi Álasund gegn Mjøndalen en staðan var 3-0 í hálfleik. Álasund var langneðsta lið deildarinnar. Að lokum voru Valdimar Þór Ingimundarson og Ari Leifsson í byrjunarliði Strømsgodset sem tapaði 0-4 á heimavelli gegn Stabæk. Íslendingaliðið var öruggt fyrir lokaumferðina eftir að hafa verið í fallbaráttu nær allt tímabilið.
Fótbolti Norski boltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Sjá meira